Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 64

Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 64
Náttúrufræðingurinn 144 Þótt það hafi ekki verið rannsak- að sérstaklega er það mat höfundar að hjartanykran hafi aðeins lítillega látið undan síga enn sem komið er. Tegundin virðist allvel aðlöguð að aðstæðunum í Opnum og vel er hugsanlegt að hún þrífist betur en kransarfinn á stöðum þar sem hitinn í tjörninni er mestur. Hjarta- nykra fjölgar sér aðallega með jarð- stönglum en ber einnig fræ.49 Hún er þekjumyndandi eins og kransarfinn og getur frumframleiðsla hennar orðið mikil við réttar aðstæður.31,50 Vísbendingar eru um að hún geti aðlagast 40°C heitu vatni51 og að brúttóljóstillífun gangi best við um 37–38°C en að það dragi þó úr nettó- ljóstillífun við hitastig yfir 33°C.52 Á árunum 1978–1980 var hitastigið í helstu uppsprettunum í Opnunum um 30°C 31 en var í kringum 28°C þegar rannsóknin var gerð. Um 2°C lækkun virðist hafa orðið á hitastig- inu í uppsprettunum í Opnunum á undanförnum 30 árum eða svo. Lækki hitastigið um örfáar gráður til viðbótar er ekki ósennilegt að möguleikar hjartanykrunnar muni versna talsvert. Ástæður hitastigs- lækkunarinnar eru ekki þekktar en nýting jarðhita á nálægum svæðum er ekki útilokuð. Í Opnunum stendur hjartanykran auk þess verr að vígi en kransarfinn að því leyti að á veturna er hún í dvala og aðeins ræturnar lifa en þá er kransarfinn í fullum vexti og fær því gott forskot. Það er væntanlega aðallega hiti vatnsins sem gerir kransarfanum kleift að ná svo góðri fótfestu í tjörn- inni. Óljóst er hins vegar hvort hann getur þrifist í vötnum á Íslandi án jarðhitaáhrifa. Fyrstu vísbendingar um hvort svo sé eru hversu langt niður eftir afrennslinu frá tjörninni í Opnum hann getur vaxið. Þarna er væntanlega að finna hitastigul frá því sem hentar kransarfanum mjög vel og allt niður í það sem hann getur varla þrifist við. Ekki er útilokað að kransarfi í afrennslinu hafi dreift sér neðar en kom í ljós í rannsókninni, þar sem vatnið í skurðinum dýpkar eftir því sem nær dregur ósnum og plöntur sem vaxa á botninum myndu leggj- ast undan straumi og því ekki ná vatnsborðinu. Plöntuhlutar krans- arfa eru stöðugt að berast niður eftir frárennslinu svo enginn hörgull er á dreifingu hans frá Opnunum í Ölfus- forirnar og ósa Ölfusár og Varmár. Plöntuhlutarnir geta síður dreifst á móti straumi svo líkurnar eru litlar á að kransarfinn dreifist að ráði upp eftir Varmá eða hliðarskurð- um með rennsli. Kransarfi gæti þó e.t.v. borist með fuglum13 og jafnvel styttri vegalengdir með flóðum eða vindreki og svo auðvitað mönnum. Það er síðan háð lífsskilyrðum á nýj- um áfangastað hvort hann getur náð sér þar á strik. Ætla má að hitastig í efstu lögum yfirborðsvatns á Ís- landi nái víða 10–15°C á sumrin. Eins og fram kom hefur nettóljós- tillífun kransarfa mælst jákvæð við 5°C en aðeins þegar birtustig var meira en 10 klx (kílólúx).29 Vöxtur kransarfans í tjörninni í Opnum á miðjum vetri sýnir að þá getur sólarljós til ljóstillífunar verið nægj- anlegt á þessari breiddargráðu. Sú spurning hlýtur því að vakna hvort samanlögð ljóstillífun og næring- arforði gæti nægt til að halda lífi í kransarfaplöntum yfir veturinn í einhverjum venjulegum íslensk- um vötnum, þ.e. vötnum þar sem jarðhitaáhrifa gætir ekki. Sé svo aukast líkurnar á að hérlendis geti hann þrifist víðar en í Opnunum, þótt alls ekki sé víst að hann muni eiga þar auðvelt uppdráttar. Ekki sýnist líklegt að hann verði ágengur við venjulegt hitafar í íslenskum vötnum. Sú ályktum byggist aðal- lega á þeim upplýsingum heimilda sem vitnað var til að framan um kjör- og vaxtarhitastig kransarfa, en auk þess styður mynstur fundarstaða, þekjuhlutfalls og hitafars í þessari rannsókn þær upplýsingar í grófum dráttum. Í vötnum með venjulegt hitafar væri hann líklega nálægt neðri hitastigsmörkum fyrir vöxt og viðgang tegundarinnar. Staðir hér- lendis þar sem jarðhita gætir í yfir- borðsvatni gætu hins vegar hentað kransarfa mun betur. Víða eru volgir smálækir frá laugum og hverum en óvíst hvort þar er nægur stöðugleiki í hitastigi nálægt kjörhitastigi hans. Varmár eru fáar en ekki er hægt að útiloka að kransarfi gæti þrifist í lygnum köflum þeirra berist hann þangað. Volgar uppsprettur í vötnum eru einnig hugsanlegir vaxtarstaðir kransarfa, t.d. í Ytriflóa í Mývatni. Þeir staðir sem helst kæmu til greina eru þó fáir og líkurnar á að hann berist þangað af sjálfsdáðum í flest- um tilvikum alls ekki miklar. Lofslagshlýnun hefur þegar hafist yfir Íslandi.53 Þar sem hiti vatna ræðst að talsverðu leyti af loft- hita54,55,56 mun áframhaldandi hlýn- un loftslags á Íslandi hafa þau áhrif á vistkerfi vatna að hitastig þeirra hækkar. Ef fer sem horfir breytast því vistkerfi íslenskra vatna í þá átt að varmakærar plöntur eins og kransarfi verða samkeppnishæfari. Eins og áður sagði eru þegar komnar fram vísbendingar um að fylgni sé á milli loftslagshlýnunar og fjölgunar staða þar sem kransarfi hefur orðið ríkjandi í ám.25 Ef ekki munar miklu að kransarfi geti almennt þrifist við núverandi aðstæður á Íslandi getur áframhaldandi hlýnun því aukið möguleika hans að því leyti. Verði hann áfram til staðar í Opnum gæti hann hugsanlega dreifst þaðan, en líklegra er þó að hann muni ber- ast út í náttúruna frá vatnsbúrum og garðtjörnum. Í þessu sambandi ber að hafa í huga að tegund sem er ágeng á einu landsvæði er það ekki endilega á öðru þótt hún hafi náð þar fótfestu. Hún kann þess í stað allt eins að auka líffræðilega fjölbreytni og styrkja vistkerfi við- komandi svæðis. Við fyrstu sýn kann það að virðast langsótt að vatnsbúrsplanta sem á uppruna sinn í heittempruðu lofts- lagsbelti skuli ná að festa rætur í íslenskum vötnum. Tilvist krans- arfans á Íslandi er þó staðreynd og ekki er hægt að útiloka að hann gæti dreifst víðar þótt hann gæti eins tal- ist í útrýmingarhættu á meðan hann vex ekki á fleiri stöðum en nú. Ýmsar aðrar vatnaplöntur sem eru notaðar í vatnsbúrum hafa sums staðar orð á sér fyrir að vera ágengar.14,16,35,57–64 Má þar t.d. nefna kniplingajurt (Lagarosiphon major), 80 3-4#Loka_061210.indd 144 12/6/10 7:22:35 AM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.