Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 73
153
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Umræður
Birkið í Gára, útbreiðsla og
uppruni
Athugun á útbreiðslu birkis í Gára
snemmsumars 2008 sýnir að birki
finnst ekki eingöngu þar sem því
var sáð heldur einnig í nokkrum
mæli utan sáningarsvæðis, einkum
vestsuðvestur af því (2. mynd). Hér
getur verið um að ræða dreifingu
fræs frá fjarlægum fræuppsprett-
um, af fræi sem myndast hefur á
sjálfsánum plöntum í Gára eða af
fræi sem þar var sáð en hefur síðan
flust til eftir sáningu (síðdreifing – e.
secondary dispersal). Plönturnar sem
fundust við sáningu 1992 og 1994 í
Gára sýna að fræ berst í einhverjum
mæli þangað um langan veg. Sum-
arið 1994 voru þær stærstu orðnar
um 30 cm á hæð og gætu því hafa
farið að bera fræ um tveimur árum
síðar, þegar þær höfðu náð um 60
cm hæð (sbr. 5. mynd). Miðað við
að plönturnar voru allar sunnarlega
í Gára og að fræ dreifist aðallega
undan norðaustan- og austanáttum
á þessum slóðum20 má reikna með
að birkið syðst í Gára og vestsuð-
vestur af sáningarsvæðinu megi
að einhverju leyti rekja til fræs sem
myndast hefur á svæðinu. Ekki er
heldur hægt að útiloka síðdreifingu
fræs með vindi og vatni eða frekari
dreifingu fræs inn á svæðið um lang-
an veg. Sniðin þrjú sem mæld voru
í úttektinni eru öll á austurhluta
sáningarsvæðisins og því áveðurs
við þær sjálfsánu plöntur sem fund-
ust í Gára 1992 og 1994. Því má
reikna með að langmest af því birki
sem fannst á sniðunum í Gára hafi
komið upp af því fræi sem þar var
sáð (3. mynd).
Árangur sáninga, hæð og
vaxtarlag
Niðurstöður þessarar úttektar sýna
að sáning birkis í Gára hefur borið
allgóðan árangur. Þéttleiki plantna
yfir 10 cm á hæð á sniðunum er þó
frekar lítill, eða frá 37 upp í 510 pl/
ha. Þéttleiki ungs sjálfsáins birkis í
nágrenni eldri birkiskóga, þar sem
fræregn er verulegt, getur verið
mjög mikill. Mælingar í Gunnlaugs-
skógi sem gerðar voru árið 1989
sýndu t.d. að þéttleiki nálægt birki-
lundum var sums staðar yfir 200.000
plöntur á hektara.11 Lengra frá nátt-
úrlegum fræuppsprettum er þétt-
leiki sjálfsáins birkis miklu minni.
Þéttleiki birkis á Skeiðarársandi var
frá 50 upp í 1100 plöntur á hekt-
ara árið 2004, þegar um 20 ár voru
liðin frá því að birki hóf að nema
þar land,3 sem er mjög svipað og
í Gára. Samanborið við lágvaxna
kjarrskóga er þéttleikinn í Gára
lítill. Þéttleiki í eldri birkiskógum á
Vesturlandi með 2,3–2,4 m ríkjandi
hæð hefur t.d. mælst 4730–7330
pl/ha.21 Hins vegar er þéttleiki oft
minni í hávaxnari birkiskógum.
Í Vatnshornsskógi í Skorradal er
ríkjandi hæð t.d. um 4,6 m og
þéttleiki þar er um 2870 pl/ha.21
Í gamla Hallormsstaðarskógi er
yfirhæð um 7,8 m og þéttleiki um
2750 pl/ha.22 Í gömlum birkiskógi
í Viðey í Þjórsá, þar sem þéttleiki
birkis hefur verið mældur á þrem-
ur stöðum, var yfirhæð 2,5–4,5 m
og þéttleiki 800–3800 pl/ha.23 Mið-
að við landsúttekt sem gerð var á
íslenskum birkiskógum á árunum
1987–1991 telst þéttleiki ≤ 1000 tré/
ha mjög lítill.24 Af þessu er ljóst
að þéttleiki birkis á sniðunum í
Gára er talsvert undir því sem víða
finnst í birkiskógum hér á landi.
Útbreiðsla birkis í Gára er blett-
ótt og vaxa plönturnar víðast hvar
nokkrar saman í þyrpingum (4.
mynd). Hugsanlegt er að þetta stafi
af ójafnri dreifingu fræs við sáningu.
Líklegra er þó að þetta endurspegli
Snið 1
– Transect 1
N = 96
Snið 2
– Transect 2
N = 13
Snið 3
– Transect 3
N = 93
Þéttleiki víðis
Plöntur/ha
– Plants/ha
2.240±135 a 1.460±351 b 1.820±130 ab
2. tafla. Meðalþéttleiki víðis (plöntur á ha ± staðalskekkja) við birki á þremur sniðum í
Gára. Mismunandi bókstafir tákna marktækan mun (p<0,05) á milli meðaltala, sam-
kvæmt Tukey-prófi. – Mean density (plants per ha ± se) of willow plants in the vicinity
of birch plants at the three study transects in Gári. Different letters represent significant
differences (p<0,05) according to Tukey test.
7. mynd. Samband fjarlægðar frá næsta víði og hæðar birkiplantna í Gára. Rauð lína sýnir
línulegt aðhvarf hæðar birkis við fjarlægð frá víði. Grænar línur tákna meðalhæð birkis.
– The relationship between distance from the nearest willow and height of birch. Linear
regression line is shown in red, means are denoted with green lines.
Fjarlægð frá næsta víði, cm – Distance from nearest willow
H
æ
ð
bi
rk
is,
cm
–
H
eig
ht
of
b
irc
h
80 3-4#Loka_061210.indd 153 12/6/10 7:22:41 AM