Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn
154
mismun í umhverfisskilyrðum.
Birkifræ spírar yfirleitt vel í opnu
landi þar sem svarðlag er gisið en
verr eða ekki þar sem gróðurþekja
er þétt, þykk og órofin.11,12 Afkoma
kímplantna er á hinn bóginn oft lítil
í ógrónu landi, m.a. vegna mikillar
frostlyftingar,11,12 vetrarþurrks, skaf-
rennings og sandfoks.25,26 Hentugar
aðstæður fyrir uppvöxt birkis eru
einkum í hálfgrónu landi með opn-
um í gróðursverði, þunnu mosalagi
eða lífrænni skán11,12 og þar sem ein-
hver víðir er til staðar.14 Líklegt er að
útbreiðsla birkis í Gára endurspegli
þau svæði þar sem þessar aðstæður
voru ráðandi þegar sáð var í landið á
árunum 1992–1994. Þéttleiki plantna
var einmitt mestur á sniði 1 þar sem
gróðurþekja var hvað opnust og
þéttleiki víðis mestur (1.–2. tafla).
Tekið skal fram að á því svæði var
birki sáð tvisvar og væntanlega hef-
ur það aukið á þéttleikann. Birkið í
Gára var að jafnaði eins til fjögurra
stofna og fremur beinvaxið. Það
mun því líklega mynda allhávaxinn
skóg er fram líða stundir en rann-
sóknir á íslensku birki hafa sýnt
að einstofna eða fástofna tré verða
að jafnaði hávaxnari en þau sem
margstofna eru.24 Birkið í Gára er
enn lágvaxið, hæsta plantan var 160
cm en meðalhæð aðeins 45 cm (7.
mynd). Reikna má með að flestar
plöntur hafi vaxið upp sumarið eftir
sáningu. Einhverjar hafa þó komið
upp seinna því nokkur spírun getur
orðið á öðru ári12 og jafnvel síðar,
en vitað er að birkifræ getur lifað í
meira en 4 ár í jarðvegi.27,28 Ef gert
er ráð fyrir að birkið sé 12–14 ára
fæst meðalvaxtarhraðinn 3,2–3,7
cm/ár, sem er aðeins fyrir neðan
lægsta meðalvaxtarhraða birkis í
Skandinavíu (4–11 cm/ár)29 og á
Íslandi (4,8–7,3 cm/ár).30 Birkið í
Gára er þó enn ungt en rannsóknir á
meðalvaxtarhraða sem nefndar eru
hér að framan eru byggðar á eldri og
stærri plöntum.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að
greinilegt jákvætt samband er á
milli stofnflatarmáls og aldurs birkis,
a.m.k. meðan plönturnar eru ungar.3
Mikill breytileiki í stærð birkis í Gára
þýðir þó ekki endilega að plöntur
séu misgamlar því verulegur mun-
ur getur verið á milli jafngamalla
plantna. Það fer m.a. eftir því hve-
nær fræ spírar12 en ekki síður eftir
vaxtarskilyrðum nákvæmlega þar
sem ungplantan vex.11,12
Birkið virðist ekki hafa veruleg
skjóláhrif í Gára því gróðurþekja var
svipuð bæði hlémegin og áveðurs
við plönturnar.
Fræmyndun
Aðeins lítill hluti (6,0%) birkisins
í Gára hafði myndað rekla haust-
ið 2007 (5. mynd). Rannsóknir á
íslensku birki hafa sýnt að fræmynd-
un getur hafist upp úr 5 ára aldri.
Blómstrandi plöntur eru fáar í fyrstu
en þeim fjölgar eftir því sem þær
verða eldri.3,11 Elstu birkiplönturnar
á sniðunum í Gára hafa líklega verið
13–15 ára. Þó skal tekið fram að hugs-
anlegt er að hæsta mælda plantan
(160 cm), sem óx sunnarlega á sniði
3, hafi verið eldri og sjálfsáin. Hún
skar sig talsvert úr öðrum plöntum
því hún var um 40 cm hærri og með
um helmingi fleiri rekla (≈100) en
þær plöntur sem næst henni komu
(7. mynd). Ef þetta er rétt er hlutfall
fræberandi sáðplantna heldur lægra
en mælingarnar sýna (5. mynd).
Bent hefur verið á að sennilega sé
það stærð plantna fremur en aldur
sem ráði fræmyndun.31 Í Gára bar
engin planta undir 60 cm þrosk-
aða rekla en meðalhæð plantna
með rekla var 107 cm. Meðalhæð
mældra birkiplantna á svæðinu var
aftur á móti aðeins 45 cm. Flestar
plöntur höfðu því líklega ekki náð
nægilegri stærð til fræmyndunar.
Fræframleiðsla birkis í Gára mun
sennilega taka kipp á næstu árum,
þegar plönturnar stækka, og þar
sem flest birkifræ dreifast stutt frá
móðurplöntu mun fræregn aukast
þar til muna.11
Áhrif víðis á vöxt birkis
Rannsóknir á uppvexti og afkomu
birkis á hálfgrónum mel í Vakalág
um 6 km suðvestur af Gunnarsholti
sýndu að hjá birkiplöntum á fyrsta
og öðru ári var greinilegt jákvætt
samband milli stærðar plantna og
fjarlægðar frá víði.14 Birkiplöntur
sem voru nær víði en 65 cm voru
að meðaltali stærri en þær sem voru
fjær. Var þetta skýrt með því að þær
plöntur sem voru nálægt víði myndi
tengsl við svepprót víðisins snemma
á lífsferlinum14 og þau eru talin geta
aukið vöxt birkisins.32
Í Gára óx yfirgnæfandi meirihluti
birkiplantna nálægt víði (6. mynd).
Niðurstöðurnar sýndu einnig að í 0
til 250 cm fjarlægð hækkaði birkið
marktækt með aukinni fjarlægð frá
víði, þótt sambandið væri frekar
veikt (7. mynd). Þá kom einnig fram
að allra næst víðinum (<25 cm)
voru allar birkiplönturnar fremur
lágvaxnar en mikill breytileiki var
í hæð birkiplantna í 25–150 cm fjar-
lægð frá næsta víði. Að plönturnar
séu svo lágvaxnar allra næst víð-
inum má líklega rekja til samkeppni
við víðinn og þann gróður sem næst
honum vex. Mikill stærðarmunur
á plöntum í 25–150 cm fjarlægð
er athyglisverður. Ef gert er ráð
fyrir að ekki sé mikill munur á aldri
bendir það til þess að vaxtarskilyrði
séu misjöfn á þessu fjarlægðarbili. Í
rannsókninni í Vakalág kom einmitt
fram slíkt mynstur, bæði hjá eins
árs og tveggja ára plöntum, því
nálægt víði var bæði að finna „mjög
litlar“ plöntur og „mjög stórar“.14
Hugsanlega á breytileiki í næringar-
ástandi jarðvegs hér hlut að máli en
líklegra er að ástæðuna megi rekja
til svepprótar. Vel má vera að þær
fræplöntur sem eru nálægt virkustu
svepprótum víðisins nái að vaxa
hraðar og komist frekar á legg en
þær sem eru ekki í slíkri aðstöðu
þótt allar séu þær tiltölulega nálægt
víði. Þetta gæti einnig skýrt það að
ekki var marktækur munur á hæð
birkis nálægt víði (<250 cm) og fjarri
víðiplöntum (>250 cm) (7. mynd).
Rannsóknir við svipaðar aðstæð-
ur annars staðar hafa sýnt fram
á jákvæð áhrif á vöxt og viðgang
ungplantna af tengingu milli
plantna um svokölluð svepprót-
arnet (e. mycorrhizal networks)33,34 en
þá tengjast plöntur sömu eða mis-
munandi tegundar um net svepp-
þráða. Á eldfjallinu Fuji í Japan kom
80 3-4#Loka_061210.indd 154 12/6/10 7:22:41 AM