Náttúrufræðingurinn - 2010, Qupperneq 75
155
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
t.d. fram að ungplöntur af Betula
ermanii og Larix kaempferi nutu góðs
af nærveru við Salix reinii, sem er
frumherji á vikursvæðum í hlíðum
fjallsins. Plöntur sem gróðursettar
voru nálægt víðinum mynduðu t.d.
auðveldlega svepprót og uxu mun
betur en þær sem gróðursettar voru
í land án víðis. Sams konar áhrif
komu einnig fram hjá ungplöntum
S. reinii sem gróðursettar voru við
eldri víðiplöntur.33
Rannsóknir hafa þó sýnt að áhrif
tengingar um svepprótarnet fyrir
vöxt ungplantna eru ekki á einn veg
því þau geta einnig verið hlutlaus
eða neikvæð.35 Bent hefur verið á
að fræplöntur sem tengjast útrænni
svepprót hagnist yfirleitt á tengingu
við svepprótarnet meðan áhrifin af
að tengjast neti innrænnar svepprót-
ar séu breytilegri.35 Í því sambandi
er rétt að benda á að birki getur
myndað svepprót með fjölmörgum
tegundum af útrænni svepprót36 og
sama er að segja um víðitegundir,
sem sumar eru með fyrstu landnem-
um á nýju landi.37,38,39
Í ljósi þess að áhrifa sveppróta
gætir einna mest á næringarsnauð-
um svæðum má búast við að víðir
geti haft jákvæða þýðingu fyrir
landnám birkis og frumframvindu,
ekki aðeins á örfoka landi eins og
í Vakalág og Gára heldur einnig á
sandsvæðum, jökulaurum, vikrum
og hraunum. Talið er að svepprætur
stuðli ekki aðeins að upptöku nær-
ingarefna og hjálpi til við uppvöxt
ungplantna heldur hafi einnig önn-
ur jákvæð áhrif á vistkerfi, t.d. með
því að draga úr útskolun og bæta
hringrás næringarefna.35
Birkisáningar við endurheimt
Hekluskóga
Líkt og hjá öðrum plöntum er
landnám birkis oftast takmarkað
af tveimur þáttum, skorti á fræi og
hentugum blettum fyrir spírun og
uppvöxt kímplantna.40 Niðurstöður
þessarar rannsóknar sýna að með
því að auka fræframboð með bein-
um sáningum í land megi stuðla að
endurheimt birkiskóga við Heklu
og á öðrum skóglausum svæðum
þar sem spírunar- og uppvaxtarskil-
yrði eru hagstæð. Kostur sáningar
fram yfir útplöntun er að aðferðin
er auðveld í framkvæmd og hentar
einnig vel á svæðum þar sem erfitt
getur verið að komast að til útplönt-
unar. Aðferðin líkir eftir náttúrlegri
sjálfsáningu birkisins og komist er
hjá ræktun birkis í gróðrarstöðvum
og útplöntun, sem er bæði kostn-
aðarsamari og tímafrekari.
Sáningar eru þó ekki gallalausar
því spírunargeta fræs getur verið
misjöfn, fræ geta borist burt af því
svæði sem sáð er í eða verið étin af
fuglum eða skordýrum, auk þess
sem sáning krefst góðrar þekkingar
á hvar best er að sá svo viðunandi
árangur náist. Þá má reikna með að
við beinar sáningar líði lengri tími
þar til plönturnar ná að þroska fræ
og sá sér út en ef plantað er í landið.
Áætla má út frá rannsókn okkar í
Gára að það taki um 15 ár frá sán-
ingu þar til fræregn frá birkinu verði
verulegt, en við útplöntun má gera
ráð fyrir allgóðu fræregni aðeins
10 árum eftir útplöntun hjá grósku-
miklum plöntum.15 Við endurheimt
birkiskóga ætti hins vegar að líta til
áratuga og alda og skiptir þá þessi
munur á aðferðum litlu. Á svæðum
þar sem aðstæður eru óhentugar til
uppvaxtar kímplantna nægir ekki
að auka fræregn. Til þess að koma
upp birki við slíkar aðstæður verður
annaðhvort að planta eða skapa
aðstæður fyrir landnám með því að
opna svörð eða græða upp örfoka
land.
Lokaorð
Sáning birkis er ódýr og einföld
aðferð við endurheimt birkiskóga
sem hiklaust ætti að nota á svæðum
þar sem skilyrði til spírunar og upp-
vaxtar kímplantna eru góð.
Áhugavert verður í framtíðinni
að fylgjast með framvindu birkisins
í Gára, sérstaklega að sjá hve langan
tíma það tekur skóg að vaxa upp frá
sáningu og hvaða áhrif staðbundið
fræregn hefur á framvinduna. At-
hyglisvert verður að fylgjast með
því hvort landnám birkis á svæðinu
stöðvist með aukinni gróðurþekju.
Einnig er áhugavert að skoða hversu
langt út frá upphaflega sáning-
arsvæðinu áhrifa af auknu fræregni
muni gæta.
Summary
Seeding of birch for woodland
restoration
Since the settlement of Iceland in the 9th
century the cover of mountain birch
(Betula pubescens Ehrh.) woodlands has
declined drastically. Efforts to restore
some of the lost woodlands have start-
ed. To test the possibility of restoring
birch woodland in a simple way at a
low cost, birch seed was sown in 1992
and 1994 into a reclaimed erosion area,
Gári, near Gunnarsholt in southern
Iceland. The main aim of this study, car-
ried out in 2007, was to investigate the
outcome of these direct seedings.
Transects were laid out in the seeding
area and birch density and height deter-
mined as well as the density of willow
plants and vegetation cover.
The results showed that the seeding
in Gári was successful. Birch density
was between 37 and 510 plants per hec-
tare. The distribution of the birch was
patchy, probably due to differences in
vegetation cover and surface and soil
properties. The birch had reached an
average height of 45 cm. Most of the
plants were polycormic with 2–4 stems.
A small proportion of the plants (6%)
had reached maturity and were produc-
ing seeds. All of them were ≥ 60 cm in
height. Most of the young birch plants
grew close to willows. The highest birch
plants were found 25–150 cm from the
willow plants. However, variation in
their size was very high which may be
related to differences in mycorrhizal
infection.
The results of the study show that by
increasing the seed input by direct seed-
ing, birch woodland can be restored in
deforested areas where site conditions
are favorable for birch germination and
establishment.
80 3-4#Loka_061210.indd 155 12/6/10 7:22:42 AM