Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 79

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 79
159 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags George C. Williams áhrifamikill þróunarfræðingur Minningarorð George C. Williams, einn helsti þróunarfræðingur 20. aldar, lést miðvikudaginn 8. september síðastliðinn, 84 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Doris Williams, fjögur uppkomin börn og fjölda barna- barna. Eftir George liggur fjöldi bóka um þróun- arfræði, þar á meðal tímamótaverk hans frá árinu 1966, Adaptation and Natural Selection, sem hafði mikil áhrif í þróunarfræði og atferlisvistfræði. George Williams var prófessor við vist- og þróun- arfræðideild New York-háskóla í Stony Brook, sem árum saman var talin ein sú fremsta á sínu sviði. Hann var líka einn svokallaðra Íslandsvina, en hann eyddi tveimur rannsóknarleyfum á Hafrann- sóknastofnuninni í kjölfar kynna við Jón Jónsson fiskifræðing sem þar starfaði, fyrst árið 1966 og svo aftur nokkrum árum síðar. George bjóst við að hér væru vistkerfi einföld, með fáum en vel þekktum tegundum, og því væri auðvelt að ráða í samspil þeirra. Hann komst að því að þetta var fullmikil bjartsýni; lífríki í sjó við Ísland er fjölbreytt og langt frá því að vera einfalt. Á Hafrannsóknastofnuninni starfaði George einkum við úrvinnslu gagna sem Hermann Einarsson hafði safnað á árunum 1948–1957 um seiðamagn í Faxaflóa, og þá sérstaklega m.t.t. þorska og ýmissa flatfiska. Um þessa vinnu skrifaði George grein sem birtist í Riti fiskideildar árið 1968. Síðar átti George eftir að leiðbeina Vilhjálmi Þorsteinssyni, nú fiskifræðingi á Hafrannsóknastofnuninni, í meistaranámi, og skrif- uðu þeir ásamt öðrum tvær greinar um þróunarlega stöðu ála á Íslandi. Áður en ég hélt til framhaldsnáms í Bandaríkj- unum árið 1990 fékk ég bréf frá George á íslensku þar sem hann bauðst til að hýsa mig, konuna mína og tvo litla syni meðan við fyndum okkur húsnæði. Þegar ég hitti hann fyrst hélt ég reyndar að ég hafði farið húsavillt, því í mínum augum var hann líkari norskum bónda en þeim heimsfræga fræðimanni og heimsborgara sem hann var. Hjónin George og Doris reyndust okkur mjög vel en við vorum ekki fyrsta fólkið sem þau aðstoðuðu við að koma sér fyrir á Long Island. Líklega máttum við þakka góðvildina áhuga þeirra á Íslandi, en dvöl þeirra á landinu var þeim minnisstæð; hér höfðu þau átt góða tíma og í raun vildu þau helst að Ísland héldi áfram að vera eins og það var á sjöunda áratugnum. Hingað komu þau nokkrum sinnum í styttri heimsóknir og síðast hélt hann fyrirlestur á Hafrannsóknastofnuninni 2001. George hafði áhuga á íslensku, sem hann hafði lært af eigin rammleik og með hjálp vina. Hann las bækur og blöð á íslensku og var áskrifandi að Nátt- úrufræðingnum. Íslenskur texti vafðist þó stundum óneitanlega fyrir honum; t.d. skildi hann alls ekki hvað átt var við þegar hann las blaðagrein þar sem systurnar í Stykkishólmi komu við sögu og spurði hvaða frægu systur þetta væru. Náttúrufræðingurinn 80 (3–4), bls. 159–160, 2010 80 3-4#Loka_061210.indd 159 12/6/10 7:22:43 AM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.