Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 81
161
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Náttúrufarsannáll 2008
Árni Hjartarson og Droplaug Ólafsdóttir
Veður
Samkvæmt veðurfarsyfirliti Trausta Jónssonar, veður-
fræðings hjá Veðurstofu Íslands, þótti veðurfar ársins
2008 lengstum hagstætt. Sumarið frá maí til og með
september var óvenjuhlýtt að öðru leyti en því að
norðanlands og austan var júní heldur kaldur og sólar-
lítill. Árið var 13. árið í röð með hita yfir meðallagi í
Reykjavík. Hlýjast var að tiltölu um norðvestanvert
landið, en einna kaldast suðaustanlands og sums
staðar á Austurlandi. Hitabylgja gekk yfir seinnihluta
júlí og þá voru skráð nokkur ný hitamet. Á Þingvöllum
mældust t.d. 29,7°C þann 30. júlí. Það er hæsti hiti sem
mælst hefur á staðlaðri sjálfvirkri stöð hér á landi frá
upphafi slíkra mælinga. Met féllu einnig í Reykjavík
sama dag, þegar hitinn á sjálfvirku stöðinni fór í 26,4°C.
Í Reykjavík mældust sólskinsstundirnar 195 umfram
meðallag og þar var júnímánuður óvenju sólríkur. Á
Akureyri mældust 44 sólskinsstundir umfram meðal-
lag. Úrkoma var víðast nærri meðallagi eða lítið eitt
umfram það og snjór var ívið meiri en verið hefur frá
aldamótum þótt hann næði varla meðaltali áratug-
anna þar á undan. Illviðri voru ekki tíð fremur en
undangengin ár. Þó varð nokkurt tjón í hvassviðri og
asahláku í febrúar.
Jöklar
Jöklar héldu áfram að rýrna eins og undanfarin ár.
Samkvæmt upplýsingum Odds Sigurðssonar, jarðfræð-
ings hjá Veðurstofu Íslands, sýndu sporðamælingar
að flestir jöklar eru á undanhaldi. Ekki var það þó án
undantekninga því austanverður Skeiðarárjökull og
Heinabergsjökull gengu fram. Reykjarfjarðarjökull
á Hornströndum hnikaðist fram um 4 m og eru það
líklega síðustu fjörbrot framhlaupsins sem þar hefur
verið í gangi undanfarin missiri. Sólheimajökull styttist
um heila 134 m og hefur aldrei, frá því mælingar hófust
1930, beðið annað eins afhroð á einu ári. Steinsholts-
jökull styttist þó jökla mest árið 2008, eða um 387 m.
Það var þó ekki venjulegt undanhald heldur stafaði af
því að aurþakin rönd í mælingalínu hefur ekki bráðnað
eins og aðrir hlutar jökulsins. Nú hefur röndin slitnað
frá svo búast má við að jökuljaðarinn fari að hegða
sér eðlilega. Svipað ástand hefur torveldað mælingar
við Hrútárjökul. Oddur lýkur skýrslu sinni á þessum
orðum: „Jafnt og þétt gengur á jöklana og eru þeir nú
vandfundnir sem standa framar en þeir gerðu fyrir um
4 öldum. Hvarvetna birtist undan jöklunum land sem
menn hafa ekki séð síðan í kaþólskum sið.“
Skjálftar
Mestu náttúruhamfarir ársins voru Suðurlandsskjálft-
inn sem reið yfir þann 29. maí kl. 15.46. Stærð hans var
6,3 á Richter. Upptökin voru á milli Hveragerðis og
Selfoss. Sprungan sem skjálftinn varð á hefur fengið
nafnið Krosssprungan eftir bænum Krossi í Ölfusi sem
stendur nánast yfir henni. Þar hrundu útihús og kindur
fórust. Skemmdir urðu víðar á mannvirkjum. Mörg
hús sprungu og voru metin ónýt og sprungur komu í
þjóðveg nr. 1 undir Ingólfsfjalli svo honum var lokað
um skeið. Brúnni yfir Ölfusárósa var einnig lokað stutta
stund meðan gengið var úr skugga um að hún væri
óskemmd. Meiðsli á fólki voru óveruleg. Mikið grjót-
hrun varð úr Ingólfsfjalli, Hamrinum við Hveragerði og
fleiri fjöllum. Skjálftinn fannst um allt Suður- og Vestur-
land. Breytingar urðu á hveravirkni í Hveragerði. Eftir-
skjálftar voru viðvarandi á næstu vikum. Eftirskjálfti
yfir 4 stig varð nærri Skálafelli á Hellisheiði 2. júní.
Suðurlandsskjálftinn 2008. Svona leit skjálftakort Veðurstofunnar
út 30. maí, daginn eftir meginskjálftann.
Náttúrufræðingurinn 80 (3–4), bls. 161–165, 2010
80 3-4#Loka_061210.indd 161 12/6/10 7:22:44 AM