Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Side 8
8
en nú takast þau á við margvísleg efni sem liggja utan vitundarinnar og
leita frekari skilnings á vitsmunalífi með rannsóknum á dýrum ekki síður
en mönnum17 – og jafnt með hliðsjón af þróunarsögu sem skiptum manns-
ins við umhverfi sitt hér og nú.18 Finna má forvitnilegt efni frá síðustu ára-
tugum á öllum þeim sviðum sem flokkuð eru til hugrænna fræða. Nefna
má hugmyndir ýmissa heimspekinga og gervigreindarfræðinga um tengsl
líkama, hugar og umhverfis, eða líkamsmótað vitsmunastarf (e. embodied
cognition), skrif sálfræðinga um sköpunarkraftinn (e. creativity) og mann-
fræðinga um forsögu hugans (e. prehistory of mind).19 Gerjunin er þó lík-
lega allramest á sviði taugavísinda. Þar hefur rannsóknaraðferðum fleygt
svo fram á síðustu tuttugu árum eða svo að hver uppgötvunin rekur aðra,
áhrifin ná til ólíkra fræðasviða, auk þess sem taugafræðingarnir setja fram
kenningar um aðskiljanlegustu efni eða vinna með öðrum að þeim, jafnvel
kenningu um frásagnarfræði.20
Í þessu hefti Ritsins gefst aðeins kostur á að opna sýn inn í örfáa kima
hugrænna fræða, en fleira á eftir að bætast við. Allt efnið í heftinu fellur
undir þema þess eða er nátengt því.
17 Sbr. Lynn Nadel og Massimo Piattelli-Palmarini, „What is Cognitive Science?“,
bls. ixx og xxxvi; sjá einnig um menn og dýr, t.d. Jaak Panksepp: Affective Neu-
roscience: The Foundations of Human and Animal Emotions, Oxford og New York:
Oxford University Press, 1998, og Louise Barrett, Beyond the Brain: How Body and
Environment Shape Animal and Human Minds, Princeton: Princeton University
Press, 2011.
18 Sjá t.d. denise Cummins, Robert Cummins og Pierre Poirier, „Cognitive evolu-
tionary psychology without representational nativism“, Journal of Experimental
& Theoretical Artificial Intelligence 2/2003, bls. 143–159, og dahlia Zaidel, Neu-
ropsychology of Art: Neurological, Cognitive and Evolutionary Perspectives, New York:
Psychology Press, 2005.
19 Um kenningar um líkamsmótaða vitsmuni, sjá t.d. Michael L. Anderson, „Embo-
died Cognition: A field guide“, Artificial Intelligence 1/2003, bls. 91–130; um
sköpunarkraft, sjá t.d. The Creative Cognition Approach, ritstj. Steven M. Smith,
Thomas B. Ward og Ronald A. Finke, Cambridge MA: MIT-Press, 1995 og dean
Keith Simonton, „Creativity: Cognitive, Personal, developmental, and Social
Aspects“, American Psychologist 1/2000, bls. 151–158; um forsögu hugans, sjá t.d.
Steven Mithen, The Prehistory of the Mind: A Search for the Origins of Art, Religion
and Science, London: Thames and Hudson, 1996.
20 Sjá t.d. Hannah Chapelle Wojciehowski and Vittorio Gallese, „How Stories Make
Us Feel: Toward an Embodied Narratology“, California Italian Studies Journal,
1/2011. Sótt 15.12. 2011 af http://www.escholarship.org/uc/item/3jg726c2. –
Wojciehowski er bókmenntafræðingur en Gallese taugafræðingur.
BERGljót Soffía KRiStjánSdóttiR oG ÞóRhalluR EyÞóRSSon