Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 18
18
þeirra sé ekki eins altæk og þeir hafa stundum viljað vera láta og að hún
taki ekki nægilega mið af menningu.19 Sjálfir hafa þeir breytt um áherslur.
Lakoff hefur t.d. fengist við taugafræði tungumálsins (e. Neural Theory of
Language) en Johnson hefur beint sjónum að fagurfræði og líkamsmót-
un.20
Aðrar kenningar um líkamsmótun vitsmunanna sem markað hafa hug-
ræna bókmenntafræði eru t.d. kenningin um hið ávirka vitsmunalíf (e.
enactive cognition) og kenningin um víkkaða hugann (e. extended mind).
Hina fyrri settu sálfræðingurinn Eleanor Rosch, heimspekingurinn Evan
T. Thompson og líffræðingurinn Francisco J. Varela fram árið 1991 og
sóttu hugmyndir jafnt til líffræði, fyrirbærafræði og búddisma. Þau setja
á oddinn að vitsmunastarf snúist ekki um að fyrirframgefinn hugur fáist
við birtingarmynd fyrirframgefins heims og benda á að margir evrópskir
heimspekingar hafi gert nákvæma grein fyrir að „þekking er háð því að
vera í heimi sem verður ekki greindur frá líkömum manna, tungumáli,
sögu og samfélagi – í stuttu máli frá líkamsmótun“.21 Hugmyndin um ávirkt
vitsmunalíf á nú einkum við um að skynjun og hugsun séu samtvinnuð
hreyfivirkni, og áhrifa hennar gætir m.a. í bók heimspekinganna Shauns
Gallagher og dans Zahavi sem leitast við að sýna hvað fyrirbærafræði hafi
að bjóða hugrænum fræðum.22
Fyrir seinni kenningunni hafa heimspekingurinn Andy Clark og fleiri
mælt. Hann gerir ráð fyrir að umhverfið taki virkan þátt í að knýja vits-
munastarfið og tungumálið sé ekki spegill þess sem innra með manninum
býr, heldur viðbót við það, tæki til að framlengja vitsmunina, ef svo má
19 Sjá t.d. Steven Pinker, The Stuff of Thought: Language as a Window into Human Nat-
ure, London: Allan Lane, 2007, bls. 235–278; Thora Tenbrink, „The Language
of Space and Time“, Journal of Pragmatics 3/2011, bls. 691–694 og Chris Sinha
og Kristine Jensen de Lopez, „Language, culture and the embodiment of spatial
cognition“, Cognitive Linguistics 1–2/2000, bls. 17–41. Nefnt skal að meðal gagn-
rýnenda Lakoffs og Johnsons er Stefán Snævarr, sjá Metaphors, Narratives, Emotions:
Their Interplay and Impact, Amsterdam og New York: Rodopi, 2010, bls. 114–125.
20 Sjá t.d. George Lakoff, „The Neural Theory of Metaphor“, The Cambridge Hand-
book of Metaphor and Thought, Cambridge og New York: Cambridge University
Press, 2008, bls. 17–38 og Mark Johnson, The Meaning of the Body: Aesthetics of
Human Understanding, Chicago og London: Chicago University Press, 2007.
21 Fransisco J. Varela, Evan T. Thompson og Eleanor Rosch, The Embodied Mind:
Cognitive Science and Human Experience, Cambridge MA: MIT-Press, 1992 [1991],
bls. 9 og 149.
22 Shaun Gallagher og dan Zahavi, The Phenomenological Mind: An Introduction to
Philosophy of Mind and Cognitive Science, New York: Routledge 2008.
BERGljót Soffía KRiStjánSdóttiR