Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2008, Side 15
DV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 6. JÚN( 2008 15
ir það vera nærtækari möguleika en
sprengigos í Snæfellsjökli.
Umfangsmiklar skjálftamæling-
ar og rannsóknir á jarðskorpuhreyf-
ingum hafa verið á Reykjanesinu og
reikna má með að eldgos á svæðinu
verði fyrirséð með einhverjum fyr-
irvara.
Hraunflæði yfir
Reykjanesbrautina
Byggð í Reyjavík hefur þanist út
síðustu árin. Þegar hafin var upp-
bygging í Norðlingaholti og við
Úlfarsfell heyrðust áhyggjuraddir
um að þarna væri verið að byggja
á sprungusvæði. Mestu tjón sem
verða af jarðskjálftum eru yfirleitt
vegna sprunguhreyfinga. Almanna-
varnanefnd höfuðborgarsvæðisins
hefur þó ekki upplýsingar um að
sérstök áhætta sé nú um stundir á
þessu svæði af jarðskjálftavirkni í
nánustu framtíð.
Hluti Hafnaríjarðarbæjar er
byggður á hrauni, bæði Kapellu-
hrauni og Hvaleyrarhrauni. Eins og
annars staðar þar sem orðið hefur
gos er ekki hægt að útiloka að það
endurtaki sig. Gos á þessu svæði nú
myndi líklegast aðeins raska sam-
göngum með þvl að slíta í sundur
Reykjanesbrautina. Ef um meira
gos væri að ræða gæti það hins veg-
ar runnið yfir byggð í Hafnarfirði.
Bent hefur verið á þann mögu-
leika að mjög langvinnt eldgos gæti
hafist á Islandi, svokallað dyngju-
gos. Þá má búast við að heilt fjall
myndist. Stærsta dyngjan á íslandi
er Skjaldbreiður sem náði yfir þús-
und metra hæð í dyngjugosi. Komi
upp dyngjugos myndi heil kynslóð
á höfuðborgarsvæðinu alast upp við
gosmyndanir. Ekki er þó ástæða að
sinni til að hafa áhyggjur af mann-
tjóni vegna slíks goss.
Norðlingaholt Þegar hafin var uppbygging í Norðlingaholti
og við Úlfarsfell heyrðust áhyggjuraddir um að þarna væri
verið að byggja á sprungusvæði. Mestu tjón sem verða af
jarðskjálftum eru yfirleitt vegna sprunguhreyfinga.
mm\ I H .. m r ®j
I |||4""É 1 1
HH| i — ■* r ®
Fundu virka eldstöð
neðansjávar
En íslendingar eru enn að finna
virkar eldstöðvar. Eldfjallafræðing-
urinn Ármann Höskuldsson er einn
þeirra sem síðasta sumar fundu
umfangsmikla eldstöð á Reykjanes-
hrygg sem liggur neðansjávar í átt
frá Reykjanesskaganum. í samtali
við DV í apríl sagði hann að svæðið
væri mjög virkt og að þarna gæti í
raun gosið hvenær sem er.
Ármann sagði eldstöðina vera á
um 1.500 metra dýpi og því myndi
gosið ekki hafa teljandi áhrif á
landi, nema efværi fyrir jarðskjálfta
sem fylgdu gosinu.
Flekamót eru við Reykjanesið en
Ármann varð afar hissa á að finna
þetta stóra eldstöð á úthafshryggn-
um þar.
Rannsóknum Ármanns og sam-
starfsmanna hans á svæðinu er ekki
nærri lokið og munu þær halda
áfram til sumarsins 2009. Ef ekki
gýs þar áður.
Rétt viðbrögð skipta sköpum
Almannavarnir hvetja alla til
að kynna sér þær hættur sem geta
að steðjað f eigin nágrenni og við-
brögð við þeim, hvort sem um er
að ræða eldgos, jarðskjálfta, skrið-
ur eða annað. Rétt viðbrögð skipta
sköpum.
Að sögn Kjartans Þorkelssonar
sýslumanns er ein mikilvægastsa
aðgerð þeirra sem vinna að hjálp-
arstarfi þegar illa fer að heimsækja
fólk á svæðinu. Hann segir reynsl-
una hafa sýnt að þetta sé eitt lykil-
atriðið, ekki aðeins til að huga að
slösuðum heldur fyrst og fremst til
að veita fólki öryggi.