Peningamál - 01.03.2005, Blaðsíða 24
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
1
24
borið við 4,4% meðalvöxt áranna 1998-2002. Vegna þess að enn er
töluverður útgjaldaþrýstingur hjá sveitarfélögunum vegna aukins
kostnaðar við rekstur grunn- og leikskóla og sveitarstjórnarkosningar
á næsta ári er í spá Seðlabankans gert ráð fyrir að samneysla hins
opinbera vaxi um 2½% á þessu ári. Gert er ráð fyrir svipuðum vexti
árið 2006, sem þó er undir meðalvexti síðustu ára, en til þess liggja
skýrar yfirlýsingar í langtímaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Fjármunamyndun
Nokkuð dró úr vexti fjármunamyndunar eftir því sem leið á árið í fyrra
en vöxtur fjármunamyndunar á fyrri hluta ársins var um 18% og um 9%
á seinni hluta þess. Fjármunamyndun jókst um tæplega 13% á árinu, en
í desemberspá Seðlabankans var gert ráð fyrir rúmlega 17% vexti.
Í þeirri spá sem Seðlabankinn birtir nú er gert ráð fyrir að fjár-
munamyndun í heild aukist um 33½% á þessu ári, og dragist síðan
saman um tæp 8% árið 2006 þegar farið er að draga úr fjárfestingu í
virkjunum og álbræðslum. Er það töluvert meiri vöxtur fjármuna-
myndunar á þessu ári en minni á því næsta en spáð var í desember.
Skýrist það að stórum hluta af breyttum tímasetningum stóriðjufram-
kvæmda, eins og rakið er hér á eftir.
Fjármunamyndun atvinnuveganna
Fjármunamyndun atvinnuveganna jókst um tæp 13% í fyrra en í des-
ember var spáð að hún myndi aukast um tæplega 30%. Frávikið
skýrist af því að ekki virðist hafa fallið til eins mikil fjárfesting í virkj-
unum og álbræðslum á árinu og áætlað var í spánni. Á síðasta ári var
fjárfesting vegna framkvæmda við virkjanir og stóriðjuver u.þ.b. 29
ma.kr. sem er tæplega 3½% af landsframleiðslu. Fjármunamyndun
atvinnuveganna án stóriðjufjárfestingar jókst einnig minna en bank-
inn spáði í desember. Hlutfall stóriðju af heildarfjármunamyndun árið
2004 var því um 15% eða um 27% af fjárfestingu atvinnuveganna.
Framkvæmdir við virkjanir og stóriðju verða megindrifkraftur auk-
innar fjárfestingar atvinnuvega á þessu ári. Samkvæmt nýjustu áætlun-
um mun aukinn þungi framkvæmda við stóriðju færast enn frekar yfir
á þetta ár frá árunum 2004, 2006 og 2007 (sjá nánari umfjöllun í
rammagrein 1). Nýjustu áætlanir framkvæmdaaðila gera ráð fyrir að
rúmlega þriðjungur heildarfjárfestingarkostnaðar falli til á þessu ári eða
sem nemur 85 ma.kr. Áætlað er að stóriðjufjárfesting muni því nema
tæplega 9% af landsframleiðslu ársins, tæplega þriðjungi af heildarfjár-
munamyndun og ríflega helmingi fjárfestingar atvinnuveganna á þessu
ári. Gert er ráð fyrir að afgangurinn falli til á næstu tveimur árum, 73
ma.kr. á næsta ári en minnki á árinu 2007 og verði 20 ma.kr.
Heildarkostnaður þessara framkvæmda hefur lækkað um 9%
vegna hærra gengis krónunnar en kostnaður hefur einnig lækkað að
raungildi. Hlutdeild erlends kostnaðar og aðfanga hefur jafnframt
aukist svo og notkun erlends vinnuafls, en hlutur þess hefur hingað til
verið meiri en upphaflega var ráð fyrir gert.
Á sama tíma og stóriðjufjárfesting eykst er líklegt að dragi úr
fjárfestingu á öðrum sviðum. Niðurstöður könnunar sem Gallup gerði
meðal veltuhæstu fyrirækja (án orkufyrirtækja) fyrir Seðlabankann og
fjármálaráðuneytið í febrúar benda til þess að svo verði. Mest virðast
Mynd 23
Vöxtur fjármunamyndunar og
innflutnings fjárfestingarvöru 1997-20061
1. Spá Seðlabanka um fjármunamyndun 2005-2006.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
0
10
20
30
40
50
60
-10
-20
-30
Breyting frá fyrra ári (%)
Fjármunamyndun alls
Fjármunamyndun atvinnuvega
Innflutningur fjárfestingarvöru
Mynd 24
Fjármunamyndun atvinnuvega
og í stóriðju 1990-2006
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
1990 1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006
0
4
8
12
16
20
% af VLF (línur)
0
12
24
36
-12
-24
Breyting frá fyrra ári í % (súlur)
Fjármunamyndun atvinnuvega (vinstri ás)
þar af í stóriðju (vinstri ás)
Fjármunamyndun alls (hægri ás)