Peningamál - 01.03.2005, Blaðsíða 25
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
1
25
fyrirtæki í sjávarútvegi ætla að draga úr fjárfestingu. Samdráttur í fjár-
festingu sjávarútvegs gæti þó verið ofmetinn vegna þess að mikil fjár-
festing nokkurra fyrirtækja í togurum hafi ekki komið fram í könnun-
inni. Fyrirtæki í verslun og þjónustu hyggjast hins vegar auka fjárfest-
ingu sína eins og fyrirtæki í iðnaði og framleiðslu. Þessar niðurstöður
eru í samræmi við könnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu á fjárfest-
ingaráformum aðildarfyrirtækja sinna í janúar.
Þótt könnun Gallup bendi til minni fjárfestingar innanlands á þessu
ári en í fyrra, er a.m.k. staða skráðra fyrirtækja til áframhaldandi vaxtar
nokkuð sterk. Mikill vöxtur var meðal skráðra atvinnufyrirtækja á síðasta
ári. Uppgjör rúmlega 80% atvinnufyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Ís-
lands sýna rúmlega fjórðungs veltuaukningu milli áranna 2003 og 2004
í krónum talið, samanborið við 10% aukningu milli áranna 2002 og
2003. Ætla má að um 80% af veltu hafi komið að utan, annað hvort
sem tekjur af útflutningi eða vegna starfsemi erlendis. Framlegð sem
hlutfall af veltu var nánast óbreytt milli ára, eða tæp 12%, og eiginfjár-
staða fyrirtækjanna sem var um 35%, eða svipuð og áður. Veltufé frá
rekstri hefur aukist um rúmlega þriðjung milli ára. Afkoma batnar í iðn-
aði og flutningum en versnar í sjávarútvegi og fiskútflutningi.
Fjármálaleg skilyrði fyrirtækja hafa versnað nokkuð frá því Pen-
ingamál komu út í desember, fyrst og fremst vegna stýrivaxtahækkana
og áhrifa þeirra á gengi krónunnar (sjá nánari umfjöllun um fjármála-
leg skilyrði fyrirtækja í kafla III). Hærra gengi gerir erlendar lántökur til
að fjármagna innlenda fjárfestingu óhagkvæmari. Töluverður hluti lán-
töku fyrirtækja hefur til þessa hins vegar verið til fjárfestingar erlendis.
Útlán til fyrirtækja jukust um tæplega 300 ma.kr. á síðasta ári eða um
rúm 25%. Vöxtur gengisbundinna lána var mestur í upphafi síðasta
árs, líklega tengdur skuldsettum hlutabréfakaupum, en nokkuð dró úr
vextinum frá vormánuðum. Haldist gengi krónunnar hátt má gera ráð
fyrir að dragi úr erlendri lánsfjármögnun til innlendra nota.
Seðlabankinn spáir því að atvinnuvegafjárfesting á þessu ári
aukist um rúm 52% í heild en án skipa, flugvéla og stóriðju um tæp
3%. Atvinnuvegafjárfesting mun hins vegar minnka milli áranna 2005
og 2006, enda dregur þá úr þunga stóriðju- og virkjanaframkvæmda.
Gert er ráð fyrir tæplega 13% samdrætti í heild, en tæplega 3% sam-
drætti án stóriðju, skipa og flugvéla.
Fjármunamyndun hins opinbera
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar var fjármunamyndun hins
Tafla 6 Afkoma fyrirtækja 2003-2004
Framlegð/velta Hagnaður/velta
% 2003 2004 2003 2004
Sjávarútvegur 20,8 17,7 8,5 12,1
Iðnaður 16,7 18,7 8,2 10,4
Fiskútflutningur 3,1 1,5 0,6 0,3
Flutningar 7,0 10,7 2,3 4,1
Samskiptatækni og hugbúnaður 19,2 19,6 4,5 8,2
Ýmsar greinar 26,7 23,5 14,3 11,3
Samtals 12,2 11,7 4,6 6,1
Heimild: Seðlabanki Íslands.