Peningamál - 01.03.2005, Page 64
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PEN INGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
1
64
verkum að í sameiningu gátu þeir boðið mun rýmri upphæðir að láni.
Íbúðalánasjóður lánaði því upp frá því samkvæmt reglum sínum um
hámarkslán og sparisjóðirnir sáu um að lána viðbótarfjárhæð.
Lífeyrissjóðirnir eru einnig farnir að bjóða lán til íbúðakaupa og
eru þau eingöngu veitt til sjóðfélaga í viðkomandi lífeyrissjóði. Lánin
hafa að jafnaði sama lánstíma og lánin sem bankarnir eru að bjóða en
eru ekki veitt nema upp að 60-65% af markaðsvirði húseignar. Láns-
upphæðir lífeyrissjóðslána eru mun lægri en lánsupphæðir banka og
viðskiptastofnana vegna þessa lága lánshlutfalls og getur lánið ekki
farið yfir 85-100% af brunabótamati fasteignar. Vextirnir sem bjóðast
á þeim eru nokkru hærri en bjóðast hjá bönkunum eða 4,15-4,33%.
Þrír stærstu sjóðirnir eru meðal þeirra sem teknir eru sem dæmi í töflu
hér að neðan.
Öll þau lán sem bjóðast nú til íbúðakaupa eru með 1,5% stimp-
ilgjaldi og þinglýsingargjaldi sem er að upphæð 1.200 - 1.350 krónur
og renna þessar upphæðir óskiptar í ríkissjóð.
Í eftirfarandi töflu má sjá lánamöguleika sem í boði eru um
þessar mundir. Af töflunni er ljóst að möguleikarnir eru margir.
Yfirlit um lánamöguleika
Lánamöguleikar Íbúðalán 1 Íbúðalán 2 Íbúðalán 3 Íbúðalán 4 Íbúðalán 5 Íbúðalán 6 Íbúðalán 7
Veðhlutfall 100% af 100% af 100% af 100% af 90% af 90% af 90% af
markaðsvirði markaðsvirði markaðsvirði markaðsvirði markaðsvirði markaðsvirði markaðsvirði
eða bygg-
ingarkostnaði
Hámarkslán 25 milljónir Hámark 130% Engin Engin 25 milljónir 25 milljónir 14,9 milljónir
af brunabótamati hámarks- hámarks- (innan við 100%
og lóðarmati upphæð upphæð af bruna-
samanlagt bótamati)
Veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur 1. veðréttur
ekki skilyrði ekki skilyrði
Vextir 4,15% fastir og 4,15% fastir og Breytilegir, háðir Breytilegir 4,15% fastir og 4,15% fastir og 4,15% fastir
verðtryggðir verðtryggðir veðrétti í boði gengistryggðir. verðtryggðir verðtryggðir og verðtryggðir
Blanda af ISK og
erl. myntum
Lánsform Jafnar afborganir Val Val Val Jafngreiðslulán Jafngreiðslulán Jafngreiðslulán
Lánstími 5-40 ár 5-40 ár Allt að 40 ár Allt að 40 ár 25 eða 40 ár 25 eða 40 ár 20, 30 eða 40 ár
Endurskoðunar- Já (vextir Já Já (álag Já (álag Nei Já (vextir Nei
ákvæði endurskoðaðir endurskoðað á endurskoðað á endurskoðaðir
á 5 ára fresti) á 5 ára fresti) á 5 ára fresti) á 5 ára fresti)
Endur- Nei Nei Já (einnig Já (einnig Nei Nei Já (hentar til
fjármögnun hentugt til hentugt til endurbóta og
endurbóta og endurbóta og nýbygginga)
skuldbreytingar skuldbreytingar
óhagstæðari óhagstæðari
lána) lána)
Uppgreiðslugjald 2% 2% Nei 2% 2% 2% Nei
Lántökugjald 1% 1% 1% 1% 1% 1% 1%