Peningamál - 01.05.2009, Qupperneq 34
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
2
34
Sveigjanleiki hagkerfisins kemur fram í miklum samdrætti
innflutnings sem beinir aðlöguninni að hluta úr landi ...
Íslenska hagkerfið er lítið og opið hagkerfi. Aðlögunin sem nú fer
fram birtist því í miklum samdrætti innflutnings. Árlegur samdráttur
innflutnings var 45% á fyrsta fjórðungi ársins. Gert er ráð fyrir að
samdrátturinn haldi áfram þar til snemma á næsta ári þegar fjárfesting
í ál- og orkuiðnaði eykst verulega. Neysla á innfluttum varanlegum
neysluvörum fór að minnka áður en landsframleiðsla náði hámarki,
sem er dæmigert einkenni á íslensku hagsveiflunni (sjá mynd IV-9), og
gæti aukist snemma í bataferlinu.
Mikill samdráttur í innflutningi endurspeglar stóran hlut innflutn-
ings í einkaneyslu hér á landi en einnig að stór hluti af samdráttaráhrif-
um nauðsynlegrar aðlögunar er að hluta beint úr landi. Samdráttur
innflutnings helst í hendur við minnkandi innlenda eftirspurn en
hann er líklegur til að verða meiri en nemur samdrætti innlendrar eft-
irspurnar þar sem sennilegt er að mikil gengislækkun krónunnar leiði
til þess að heimili kjósi í enn ríkari mæli að kaupa vörur sem eru fram-
leiddar innanlands í stað innfluttra vara en við hóflegri gengislækkanir.
Ennfremur hefur hlutur innflutnings í einkaneyslu aukist í samræmi við
aukna hnattvæðingu á undanförnum árum. Þessari þróun hefur nú
verið snúið við, sem á móti hefur áhrif á þróun innflutnings.
... sem veldur því að landsframleiðsla dregst mun minna saman
en innlend eftirspurn en framleiðsluslaki verður allt spátímabilið
Efnahagslægðin nú mun fela í sér mesta samdrátt landsframleiðslu
frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Gert er ráð fyrir að landsframleiðsla
dragist saman um 11% í ár. Hún dregst minna saman en innlend
eftirspurn vegna jákvæðs framlags utanríkisviðskipta. Líkur eru á að
efnahagsbatinn verði hægur. Hann verður bæði háður styrk erlendrar
eftirspurnar og árangri innlendra efnahagsaðgerða. Snörp aukning
atvinnuleysis, sem er nú komið langt yfir jafnvægisstig, bendir til þess
að verulegur framleiðsluslaki sé í þjóðarbúskapnum. Þetta staðfesta
þær niðurstöður viðhorfskannana að mjög fá fyrirtæki finna fyrir skorti
á vinnuafli eða ættu í erfiðleikum með að bregðast við óvæntri aukn-
ingu á eftirspurn (sjá mynd IV-10).
Hrun bankakerfisins, takmarkað framboð lánsfjár og mikil geng-
islækkun krónunnar hefur ekki aðeins dregið úr heildareftirspurn,
eins og útskýrt var hér að framan, heldur einnig heildarframboði
hagkerfisins. Þetta eykur óvissuna við mat á framleiðsluspennu. Það
dregur úr framleiðslugetu hagkerfisins þegar færa þarf vinnuafl milli
atvinnugreina. Til skamms tíma litið felur þetta bæði í sér samdrátt
mannauðs og tímabundinn kostnað meðan starfsfólk úr atvinnugrein-
um sem eiga undir högg að sækja fær þjálfun í nýjum störfum. Minna
framboð lánsfjár hefur einnig neikvæð áhrif á framleiðslugetu, en það
leiðir til víðtæks rekstrarvanda fyrirtækja, minnkandi veltufjármagns
og þess að framleiðslufjármunir fara forgörðum. Því er gert ráð fyrir
að framleiðslugeta dragist saman mestallt spátímabilið. Með hliðsjón
af alvarleika kreppunnar og hægum bata er þess vænst að framleiðslu-
slaki verði bæði mikill og langvinnur og að hann nái hámarki á fyrri
helmingi ársins 2010.
Mynd IV-10
Vísbendingar um notkun framleiðsluþátta
og þróun framleiðsluspennu1
1. ársfj. 2006 - 1. ársfj. 2009
1. Samkvæmt viðhorfskönnun Capacent Gallup meðal 400 stærstu
fyrirtækja landsins. Framleiðsluspenna er mat Seðlabankans.
Heimildir: Capacent Gallup, Seðlabanki Íslands.
Hlutfall fyrirtækja
Ætti erfitt með að mæta óvæntri eftirspurn (v. ás)
Framleiðsluspenna (h. ás)
Búa við skort á starfsfólki (v. ás)
% af framleiðslugetu
0
10
20
30
40
50
60
0
1
2
3
4
5
6
2009200820072006
1. Grunnspá Seðlabankans 2009-2011.
Heimild: Seðlabanki Íslands.
% af framleiðslugetu
Mynd IV-11
Framleiðsluspenna 1991-20111
-10
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
‘11‘09‘07‘05‘03‘01‘99‘97‘95‘93‘91
1. Til varanlegra neysluvara þar sem innfluttar vörur og aðföng eru
líklegar til að vega þungt eru húsgögn, heimilisbúnaður, ökutæki,
símtæki, sjónvörp, myndbönd, tölvur o.fl. Framleiðsluspenna er mat
Seðlabankans.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af framleiðslugetu
Mynd IV-9
Þróun framleiðsluspennu og kaupa
á innfluttum varanlegum neysluvörum1
-40
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
-8
-6
-4
-2
0
2
4
6
8
‘08‘06‘04‘02‘00‘98‘96‘94‘92‘90‘88‘86‘84‘82‘80
%
Innfluttar varanlegar neysluvörur (v. ás)
Framleiðsluspenna (h. ás)