Peningamál - 01.05.2009, Síða 61

Peningamál - 01.05.2009, Síða 61
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 9 • 2 61 verðbólgu. Niðurstaðan kemur e.t.v. ekki á óvart þegar litið er til þess að síðustu ár hefur dunið yfir þjóðarbúskapinn hver eftirspurnarskell- urinn á fætur öðrum sem erfitt var að sjá fyrir. Spár sjö til átta ársfjórð- unga fram í tímann koma betur út en spár þrjá til sex fjórðunga fram í tímann. Í 33-40% tilfella er verðbólgan innan 90% óvissubilsins, en aðeins í 9-25% tilfella þegar spáð er þrjá til sex ársfjórðunga fram í tímann. Tafla 3 varpar ljósi á hversu oft verðbólga hefur verið innan óvissubils spárinnar, annars vegar fjóra og hins vegar átta ársfjórð- unga fram í tímann. Ef úrtak verðbólguspáa væri nægilega stórt mætti vænta þess að helmingur spánna yrði innan 50% óvissubils, þrír fjórðu innan 75% óvissubils og níu af hverjum tíu innan 90% óvissubils lík- indadreifingarinnar. Samanburður á dreifingu spáskekkja við gefna líkindadreifingu leiðir í ljós að hin raunverulegu hlutföll eru heldur lægri þegar horft er til verðbólguspáa Seðlabankans fjóra og átta árs- fjórðunga fram í tímann. Af tuttugu og fjórum spám sem ná eitt ár fram í tímann eru einungis sex innan 50% óvissubils (25% tilvika). Tíu mælingar liggja innan 75% óvissubilsins (42% tilvika) og þrettán innan 90% óvissubils (54% tilvika). Verðbólga var því iðulega mun meiri en talið var líklegt. Annaðhvort var því sjálf grunnspáin fjarri lagi eða óvissan í spánum vanmetin. Rétt er að hafa í huga að lengi vel voru spárnar byggðar á þeim forsendum að stýrivextir og gengi krónunnar væru óbreytt. Í sumum tilfellum hefði sú forsenda þó átt að leiða til ofmats en ekki vanmats á verðbólgu. Eins og áður segir er að jafnaði erfiðara að spá fyrir um verð- bólgu langt fram í tímann. Það endurspeglast í víðara óvissubili verðbólgu. Af spánum tuttugu og tveimur sem ná tvö ár fram í tímann eru sjö innan 50% óvissubilsins (32% tilvika), þrettán innan 75% bils- ins (59% tilvika) og sextán innan 90% óvissubils (73% tilvika). Spár átta ársfjórðunga fram í tímann líta þannig út fyrir að vera talsvert betri en spár fjóra ársfjórðunga fram í tímann, en hafa ber í huga að óvissubilið er að jafnaði helmingi víðara þegar spáin nær tvö ár fram í tímann en eitt ár fram í tímann. Ef um er að ræða spár með peninga- stefnuviðbrögðum ættu áhrifin að vera að mestu komin fram á átta ársfjórðungum fram í tímann. Skekkjur í spám seðlabanka sem rekur verðbólgumarkmið með árangursríkum hætti ættu því ekki að vera kerfisbundnar. Frammistaða ýmissa líkana við að spá verðbólgu Erfitt er að spá fyrir um verðbólgu til skamms tíma litið. Við gerð þjóð- hagsspár Seðlabankans er verðbólga einn og tvo ársfjórðunga fram í Fjöldi mælinga 50% 75% 90% Fjórir ársfjórðungar fram í tímann 24 6 (25%) 10 (42%) 13 (54%) Átta ársfjórðungar fram í tímann 22 7 (32%) 13 (59%) 16 (73%) Tafl a 3 Dreifi ng mældrar verðbólgu með tilliti til verðbólguspár frá 2. ársfj. 20012 2. Í Peningamálum 2004/1 og 2004/3 var einungis birt punktspá. Því er um 24 mælingar að ræða í töfl u 3 samanborið við 26 í töfl u 2. Mynd 4 Óvissubil verðbólguspáa og mæld verðbólga frá 2005/1 Ársfjórðungar fram í tímann 90% óvissubil 75% óvissubil 50% óvissubil Líklegasta útkoman Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 2 2 2 9 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 55 8 8 8 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.