Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 36

Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 36
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 9 • 4 36 á áætlanir á tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins þar sem ekki hefur komið fram hvernig afla skuli aukinna skatttekna, aðeins hve mikilla tekna eigi að afla. Þegar Seðlabankinn vann fyrirliggjandi spá lá því ekki fyrir nákvæm útfærsla á þeim sköttum sem boðaðir voru í fjárlagafrum- varpinu. Gert er ráð fyrir að tekjuspá ráðuneytisins gangi eftir enda verði skattareglum breytt eins og þörf krefur. Í fyrri spám sem birst hafa eftir bankahrunið á árinu hefur verið spáð lægri skatttekjum en í spám fjármálaráðuneytisins og hefur munurinn helst legið í óbeinum sköttum. Lakari tekjuspár Seðlabankans í fyrri spám höfðu í för með sér að ekki var gert ráð fyrir að markmiðinu um afgang á frum- og heildarjöfnuði yrði náð fyrr en ári síðar en áætlanir fjármálaráðuneyt- isins gerðu ráð fyrir. Á grundvelli fjárlagafrumvarpsins er tekjuspá Peningamála nú hærri en áður og er gert ráð fyrir að afgangur verði á frum- og heildar jöfnuði ári fyrr í samræmi við áætlanir fjármálaráðu- neytisins. Beinir skattar hækka meira en óbeinir Tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins gerir ráð fyrir því að skatttekjur vaxi um 61 ma.kr. frá áætluðum skatttekjum ársins 2009 þar sem tæpir 38 ma.kr. komi frá beinum sköttum, 8 ma.kr. frá óbeinum sköttum og 16 ma.kr. frá nýjum orku-, umhverfis- og auðlindasköttum. Þetta er aukning nafntekna, en beinar aðgerðir á tekjuhlið nema 40 ma.kr. Skatttekjur sem hlutfall af landsframleiðslu hækka við þessar aðgerðir um 3,3 prósentur og verða 27,1%. Á sama tíma lækka útgjöld ríkis- sjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu um 3,3 prósentur og verða 39,8%. Afkomubatinn milli ára yrði því 5,3% af landsframleiðslu. Beinar aðgerðir til að draga úr útgjöldum nema tæpum 43 ma.kr. samkvæmt frumvarpinu og skiptast jafnt niður á þrjá helstu útgjalda- flokkana, eins og gert var ráð fyrir í síðustu spá. Núverandi spá gerir hins vegar ekki ráð fyrir að þetta gangi að öllu leyti eftir og byggist sú forsenda á reynslu undanfarinna ára. Jafnframt er spáin lækkuð um sem nemur minni samdrætti í samneyslu sveitarfélaga. Fjölmörg sveitarfélög hafa brugðist hratt við breyttum aðstæðum og skorið niður útgjöld. Staða þeirra er þó mjög misjöfn og erfitt að fá nægilega góða heildarmynd af henni. Afkoma hins opinbera batnar hratt á næstu árum Gangi áætlanir stjórnvalda eftir ætti afkoma hins opinbera að batna mikið á spátímabilinu. Hallinn sem nam 14% af landsframleiðslu árið 2008 ætti að ná hámarki í ár, enda aðhaldsaðgerðum verið haldið í lágmarki, og nema 15,2% af landsframleiðslu. Gert er ráð fyrir að hann lækki frá og með næsta ári, úr 9,7% af landsframleiðslu í 2,4% árið 2012. Skuldir ná hámarki á næsta ári en taka síðan að lækka aftur Áætlað er að samanlagðar skuldir ríkissjóðs, sveitarfélaga og al- mannatrygginga nái hámarki á næsta ári og að vergar skuldir muni þá nema um 136% af landsframleiðslu. Verga skuldahlutfallið helst áfram hátt næstu tvö árin þar á eftir en tekur að lækka frá og með árinu 2013. Gert er ráð fyrir að skuldahlutfallið muni lækka niður í 115% árið 2014. Tekjur (v. ás) Gjöld (v. ás) Jöfnuður (h. ás) Frumjöfnuður (h. ás) Mynd V-4 Fjármál hins opinbera 2000-20121 % af VLF % af VLF 1. Grunnspá Seðlabankans 2009-2012. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 32 36 40 44 48 52 56 60 -18 -14 -10 -6 -2 2 6 10 ‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00 Tekjur (v. ás) Gjöld (v. ás) Jöfnuður (h. ás) Frumjöfnuður (h. ás) Mynd V-5 Fjármál ríkissjóðs 2000-20121 % af VLF % af VLF 1. Grunnspá Seðlabankans 2009-2012. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 20 24 28 32 36 40 44 48 -16 -12 -8 -4 0 4 8 12 ‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00 Mynd V-6 Hrein vaxtagjöld hins opinbera 2000-20121 % af VLF 1. Grunnspá Seðlabankans 2009-2012. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 ‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.