Bændablaðið - 23.01.2014, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. janúar 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Vélaval í Varmahlíð hefur hafið
innflutning á Giant-liðléttingum
frá hollenska fyrirtækinu Tobroco
Machines, en einnig er Landstólpi
söluaðili fyrir Giant. Ég skrapp í
stutta heimsókn í Landstólpa á
gamlársdag og skoðaði þær þrjár
tegundir af Giant sem þar eru til
sölu og sýnis.
Lítið fyrirtæki sveitastráksins
stækkaði hratt
Tobroco Machines var stofnað árið
1996 af Hollendingnum Toine Brock
og var verksmiðjan til að byrja
með staðsett á býli forelda hans.
2001 hóf Tobroco að framleiða
Giant-liðléttingana og árið 2003
var starfsemin flutt af sveitarbýl-
inu til Oisterwijk í Hollandi. Í dag
starfa yfir 100 manns hjá Tobroco
Machines og framleiðslugetan er um
35 liðléttingar og skotbómulyftarar
á viku.
Giant-liðléttingarnir eru nú orðn-
ir þriðju söluhæstu liðléttingarnir í
Evrópu. Framleiddar eru 25 gerðir
af Giant-liðléttingum og tvær gerðir
af skotbómulyfturum. Hægt er að fá
hverja gerð í ýmsum útfærslum hvað
varðar dekkjastærð, yfirbyggingu,
ljósabúnað, þyngingar o.fl. og eins
er hægt að fá svokallaðan stöðug-
leikabúnað í allmargar gerðir.
Þrjár misstórar Giant-gerðir
hjá Landstólpa
Fyrir framan Landstólpa stóðu
fjórar misstórar Giant-vélar; tvær
voru af sömu stærð en með mis-
munandi búnaði (önnur með sóp, hin
með göfflum með klemmu). Allar
vinnuvélar Giant eru með aflvélar
frá Kubota (3ja og 4ra cyl.), Bosch
Rexroth-glussakerfi og Comar-öxla.
Minnsta vélin heitir D254 SW og er
með 24 hestafla þriggja strokka vél
og lyftigetu upp á 1.100 kg upp í
2,17 metra. Vélin beygir á lið með
glussatjökkum um sig miðja og er
beygjuradíus ótrúlega lítill. Hæðin
er rúmir tveir metrar en ef þarf
að lækka vélina (t.d. moka undan
grindum í fjárhúsi eða álíka) er hægt
að lækka vélina með því að fella
aftur veltigrindina.
D337T er næsta stærð fyrir ofan
og er búin þriggja strokka 33 hest-
afla vél með lyftigetu upp á 1650 kg
í 2,82 metra hæð. Á þeirri vél er líka
hægt að fella niður veltigrindina er
vélin þarf að fara í vinnu undir eitt-
hvað þar sem lofthæð er lítil.
Stærsta vélin búin
stöðugleikabúnaði og nær
28 km hraða
Risinn í Giant-fjölskyldunni hjá
Landstólpa er V452T HD. Þessi
vél býður upp á mikla möguleika
til ýmissar vinnu vegna stærðar
vélar og öflugs glussakerfis. Tækið
er með fjögurra strokka, 45 hestafla
vél og lyftigetan er 1.800 kg upp í
2,96 metra. Vélin er útbúin stöðug-
leikabúnaði til að auðvelda mokstur
og flutning á moksturstækjum með
þunga byrði. Þessi stöðugleikabún-
aður er þannig að fjöðrunin er tekin
af miðjuliðnum með tveim tjökkum
sem læsa vélinni í vissri stöðu (vélin
keyrð á sléttan flöt og henni læst).
Til samanburðar er hægt að keyra
annað framdekk vélarinnar upp á
ójöfnu og læsa henni þar. Sé keyrt á
jafnsléttu með vélina þannig læsta er
eitt dekkið á lofti (sjá mynd). Fyrir
þá sem þekkja vel til liðléttinga
sem beygja almennt um lið á þeim
miðjum er mjög auðvelt að velta
þeim. Með þessum stöðugleikabún-
aði minnkar sú hætta umtalsvert.
Þessi vél nær allt að 28 km hraða á
góðu undirlagi.
Mikið af aukahlutum fáanlegt
á Giant-vélar
Tengibúnaðurinn framan á vélunum
öllum er sá sami og hægt er að nota
búnað frá öðrum framleiðendum.
Tobroco Machines framleiðir yfir 50
tegundir af aukahlutum sem hægt er
að sérpanta á vélarnar, s.s. skóflur,
sópa, gripklær, staurabor, jarðveg-
stætara og fleira. Persónulega hefði
ég viljað sjá gult blikkljós vera á
öllum vélunum sítengt, þ.e.a.s. alltaf
þegar vélin er í gangi blikki aðvör-
unarljós ekki síst þar sem vélarnar
eru það hljóðlátar að varla heyrist
í þeim. Að öðru leyti fannst mér
þessar litlu vélar vera ótrúlega liprar
og að svona litlar vélar geti lyft svo
þungri byrði sem þær eru gefnar upp
fyrir finnst mér með ólíkindum.
Grunnverð á vélunum þrem
Minnsta vélin (Giant D254SW)
kostar frá 3.222.906 kr. fyrir utan
skatt. Næsta vél (Giant D337T)
er á grunnverði frá 4.453.268 kr.
fyrir utan skatt. Stærsta vélin er
eðlilega dýrust og fer eftir útbúnaði.
Grunnverðið á henni fer eftir útbún-
aði og því bendi ég áhugasömum á
að hafa annað hvort samband við
Landstólpa eða Vélaval sem selja
vélarnar.
Giant-fjölskyldan við Landstólpa. Myndir / HLJ
Stærsta vélin hefur mikla lyftigetu og lyftir hátt miðað við stærð.
Beygjuradíus er lítill á öllum vélunum. Ökumannsbúrið virðist lítið á-D254SW vélinni en þessi ökumaður er rétt
tæpir tveir metrar.
Eftir að hafa keyrt upp á ójöfnu og
læst stöðugleikabúnaðinum er hægt
að keyra á þrem hjólum (eða skipta
um dekk).
Eina spurningin hjá mér er hvort
þetta sæti er nægilega sterkt fyrir
íslenska veðráttu.
Flott merki framleiðandans.
Giant-smávélar:
Ótrúlega öflugir liðléttingar frá Hollandi
Bændablaðið
Smáauglýsingar
56-30-300
Hafa áhrif
um land allt!