Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1992, Page 150
148
MÚLAÞING
Þegar pabbi keypti Nes sá hann að baðstofan var ekki íbúðarhæf og
þurfti því að leita til Ármanns bónda með íbúð fyrsta árið, en Ármann
Egilsson og Ólína Sigurgeirsdóttir kona hans áttu hálft Nes. Þeirra böm
voru Jón, Geirlaug, Halldór og Anna. Baðstofa Ármanns var portbyggð,
12 álnir á lengd og 6 á breidd. Tveir stórir gluggar niðri á móti austri.
Skilveggur var þar þvert yfir og stofa í suðurenda, en pilthús í
norðurenda og þar inngangur. Ur pilthúsi lá stigi upp á loftið. Þar var
afþiljað í suðurenda hjónahús með stómm stafnglugga á móti suðvestri.
Þrír gluggar á frambaðstofu móti austri.
Pabbi fékk íbúð fyrir sitt fólk í pilthúsinu og frambaðstofunni uppi.
Hann var með 10 manns í heimili, en Ármann með 6, og nú varð allt
þetta fólk að koma sér fyrir í þessum vistarverum uppi og niðri. Nú
þætti það heilsuspillandi að þjappa svona mörgu fólki í eina íbúð með
fjórum herbergjum, en þrátt fyrir þessi þrengsli lifðu allir við góða
heilsu í bænum hjá Ármanni og Ólínu árið 1900-1901.
Pabbi og Helgi vinnumaður hans höfðu nóg að starfa. Þeir byrjuðu á
að rífa hesthúskofann á Neðrihjáleigunni og byggja hesthús fyrir fjóra
hesta. Kýmar vom hafðar þar á sumrin.
Jón bróðir kom hálfum mánuði á eftir okkur með ærnar í Nes. Hann
var marga daga á leiðinni, þurfti að fara hægt yfir með lambféð og gæta
þess að ofþreyta ekki yngstu lömbin á þessari löngu leið þar sem öll
vötn voru óbrúuð, lækir, ár og stórvötnin tvö sem ferja þurfti yfir. Eftir
einn eða tvo daga var farið að stía ánum, venjan að stía í eina viku á
undan fráfæmm. Stekkurinn var á Landsendanum og sést enn móta fyrir
honum.
Fyrsta sumarið á Nesi var talið gott til heyskapar, spretta á túni og
engjum í betra lagi. Pabbi fékk af sínu túni 60 hesta þetta sumar. Allt
túnið var kargaþýft og seinslegið, útskæklar í órækt og blóðsnöggir.
Pabbi byggði upp fjárhúsið niðri á túninu og hafði í því 40 ær, en
fyrsta veturinn á Nesi minnir mig að settar væru á vetur 70-80 kindur, 3
kýr og 4 hestar.