Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1992, Page 168
166
MÚLAÞING
um norðvestanveðrum og svo því að villast og hrekjast fram af sævar-
hömrum.
Sá ótti hefur eflaust valdið því að menn settust að uppi á fjalli og
frusu í hel ef veðrið stóð lengi og ferðamaðurinn hrakinn eða illa klædd-
ur og ónestaður.
Miklu oftar urðu menn úti á leið austur yfir heiðamar. Þeir sem voru á
leið vestur, eða norður yfir eins og venja er að segja, geta séð óveðurs-
bakka á himni yfir fjöllunum nokkuð longu áður en bylurinn skellur á.
Ef bakkinn hækkar hratt er stutt í að bylur bresti á, en ef bakkinn lækkar
verða engin veruleg veðrabrigði. Ekki þótti forfeðrum okkar ráðlegt að
leggja á heiðar inn í hríðarbakka.
Guðjón bóndi í Fagradal, líklega næsti bóndi þar á undan Guðmundi
Jónssyni frá Húsey, átti Kristján og Odd fyrir syni. Kristján fórst af
voðaskoti á sjó. Oddur átti þá heima á Eskifirði. Hann fór norður til
Vopnafjarðar til þess að fylgja bróður sínum til grafar. Þegar hann fór
austur í bakaleið skall á hann bylur. Oddur varð úti á leiðinni. Fannst lík
hans við Oddsgil í Svakabrekkum, er það nálægt gönguleið í Ketils-
staði. Þessi atburður hefur orðið litlu fyrir 1900.
Oddur hefur trúlega sest þama að til að eiga ekki á hættu að lenda fyr-
ir Móvíkurflugin og í sjó fram. Til að eiga það á hættu þurfti þó að fara
mikið afvega. Lík Odds fannst sumarið eftir þann vetur sem hann varð
úti á. Líkið lá með hönd undir höfði. Héldu því margir að hann hefði
lagst fyrir þreyttur og sofnað. Þess ber að geta að vestan- og norðvestan-
óveður eru alveg brjáluð í Hlíðinni. Þar hafa vörubílar oltið um koll, en
léttari farartæki farið á flug í slíkum veðmm. Algengt er að fé slái um
og dauðrotist og allt gler í norðvesturhliðum húsa brotni. Ovíða er meiri
ástæða til að vera veðurglöggur en í Hlíðinni.
Hellisheiði
Heiðin er stutt, aðeins klukkutímagangur milli brúna, en þriggja tíma
gangur á milli Eyvindarstaða og Ketilsstaða í Hlíð í góðu veðri og góðu
leiði. Heiðin var áður fyrr oft torfær bæði vegna ófærðar og óveðra.
Heiðin er frægt veðravíti, einkum er verri veðrátta þama svona nálægt
sjó vor og haust. Um hávetur ná hvöss veður meira inn til landsins. Úr-
koma getur verið tvöfalt meiri á Hellisheiði en t.d. innan við Sandfell,
sem er sunnan Smjörvatnsheiðar.
Margir fengu erfiða ferð yfir heiðina. Efsta brekkan að vestan er snar-
brött. Hún var oft illfær áður fyrr, einkum upp, en nú hefur bílvegur ver-
ið lagður um brekkuna.