Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2014, Síða 33
Helgarblað 21.–24. nóvember 2014 Fólk Viðtal 33
þetta. Fréttaflutningur eða skortur
á umfjöllun er gerður tortyggileg-
ur þegar sannleikurinn er kannski
bara sá að það var fámennt á vakt-
inni og eitthvað náðist ekki með
þess vegna. Traust almennings til
fjölmiðla er lélegt og það er slæmt.
Það er lítill skilningur á því hvað
blaðamenn gera raunverulega
mikið.“
Mikilvægt að þekkja
„hashtag“-ið##
Breki lagði stund á, samhliða
fréttastjórninni, MBA-nám við
Háskólann í Reykjavík og hyggst
klára það nám núna í vor. „Það er
ótrúlega lærdómsríkt að vera yfir-
maður. Það hefur gefið mér mjög
mikið og ég held að minn áhugi
liggi þar, að stjórna í stórum eða
litlum hóp. Þess vegna tók ég
ákvörðun um að mennta mig á því
sviði. Þú menntar þig ekki bara í
fjölmiðlum,“ segir Breki og vísar til
óstöðugleikans sem umlykur fjöl-
miðlamarkaðinn.
Spurður hvort hann stofni ekki
sinn eigin fjölmiðil útilokar hann
það ekki og segist líta upp til nýju
miðlanna, Kjarnans og Nútímans,
í því samhengi.
„Þessir miðlar eru reknir af fyrr-
verandi samstarfsfélögum mín-
um, mönnum sem hafa trú á ein-
hverju og standa með því alla leið.
Þeir hafa sýnt fram á að það er al-
veg hægt, þó erfitt sé, að keppa við
stóru risana. Það kom gaur, í vetur,
í heimsókn, einhver sérfræðingur í
„social media“ og tók út Vísi. Hann
var hrifinn af samvinnu miðlanna
og því öllu saman en sagði okkur
góðum tíu árum á eftir. Íslensk-
ir fjölmiðlar mega gjarnan hugsa
þetta meira út frá þvi sem er að
gerast i dag, þar skemmir til dæm-
is ekki fyrir að vera með ritstjóra
sem veit hvað „hashtag“ er.“
Helvíti gott bara
Líkt og lesendum ætti að vera
orðið kunnugt nú er Breki ekki
mjög dramatískur yfir uppsögn
sinni, þarna þar sem hann sýpur
kaffi, í „Ron Burgundy“ rúllukrag-
anum sínum, þetta kalda eftirmið-
degi í vikunni. Það er ákveðin ró
yfir honum og því kannski ekkert
óeðlilegt að sú hugmynd sæki að
mér að hann hafi haft gott af smá
fríi, enda fjölskyldumaður með
tvö ung börn. „Auðvitað er þetta
æðislega fínt líka,“ segir Breki yfir
vangaveltum mínum. „Ég er bara
í því að sækja stelpunar í skólann
og elda mat á hverjum degi. Var
einmitt að elda lambborgara í gær,
helvíti gott bara.“
Hann segist þó ekki ætla að
festast í hlutverki heimavinnandi
húsföður.
„Ég er að skoða stöðu mína,
það eru einhverjir búnir að hafa
samband,“ segir Breki og gefur
ekkert frekar uppi. „Ég er alveg til í
að prófa eitthvað nýtt. Ég ætla alla-
vega ekki að vera þekktur fyrir að
vera gaurinn sem var einu sinni
fréttastjórinn á Stöð 2. Það þýð-
ir ekki að fara í fósturstellinguna,“
segir Breki að lokum og hlær. n
„Það skemmir ekki fyrir
að vera með ritstjóra
sem veit hvað „hashtag“ er.
„Mér hefur
verið hótað, já.
M
y
n
d
ir
s
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i