Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 25

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 25
Steinn Satans að, dómurinn sem alþýðan hafði kveðið upp af heift og beiskju, þá hvarf mér allur ótti, mér varð innanbrjósts sem heyrði ég með velþókn- un hvíslað að mér: „Þetta eru makleg málagjöld, honum er þetta mátu- legt.“ Og eftir því sem mannfjöldinn espaðist, og ég heyrði máttug heiftar- ópin og hreifst með af ómálga illúð og hefndargirni, þá fann ég að mér var nauðugur einn kostur að fara að sem alþýðan bauð, ég var horfinn í hringiðu fólksins, vilji sjálfs mín mátti sín einskis framar né heldur mannúð, skynsemi og sjálfstæð hugsun. Eg skotraði augunum til Sopío, fingurnir voru á iði og tifi, vöðvarnir titruðu í andlitinu, og hún horfði nábleik á Data. Ég þóttist vita að hún hefði látið undan þessu sama ósýnilega afli og heillast af ópum lýðsins, að þetta eina orð „grýturn!" hefði einnig villt henni sjónir, henni þætti á þessari stundu sem þessi harði dómur væri æðri réttvísi, hún myndi ekki framar tálma framkvæmd hans, né gæti héðan af efnt loforð sitt og borgið syni gömlu konunnar. Mannfjöldinn varð æ æstari, hver eggjaði annan og hvatti, og allir biðu þess hver kastaði fýrsta steininum. Data riðaði á beinunum, hann reyndi að skjóta sér undan, en honum var haldið í járngreipum. Eftir skamma stund tókst honum samt að losna, hann sleit sig lausan úr höndum tveggja unglinga og hljóp inn í mannþyrpinguna. En nú kastaði tólfunum. Hann hafði sjálfur gert mannfjöldanum bending, og feigum varð ekki framar forðað. „Haldið honum, takið hann!“ kvað við úr öllum áttum. „Hafið gát á ykkur, hann er flúinn. Varið ykkur!“ Honum var veitt eftirför, og hann var fljótt tekinn höndum. Einhver kallaði: „Farið með hann niður á árbakka, niður á árbakka með hann!“ Og mannfjöldinn tók undir: „Niður á árbakka!“ Árbakkinn var skammt í burtu. Mannþyrpingin var óðara komin á stað, hver rak annan með hrindingum og keyrishöggum. Nokkrir menn voru á hlaupum í kring með hrópum og köllum: „Nú skal móðir hans gráta! Nú má enginn snúa við né svíkjast undan, ellegar ..." Sopío var horfin mér sýnum. Ég barst einnig í uppnáminu niður á ár- bakkann. Data var rekinn áfram með höfuðhöggum, hann beit og spark- aði, braust um með höfði, höndum og fótum, öskraði og rumdi, en eng- inn lagði framar hlustir við hljóðunum. Á undan öllum hlupu konurnar. Árbakkinn var því líkastur ásýndar sem væri hann alsettur maurum. Síðan tvístraðist mannsafnaðurinn og allir fóru að leita sér að steinum. á .ffiœpÁyá — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 23

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.