Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 29

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Side 29
Ilja Tsjavtsjavadze í gálganum i Það var hásumar. Dalimir og fjallgarðurinn voru skrælnaðir af þurrki og höfðu brugðið lit. Þann dag er við byrjum á sögunni, brenndi sólin land- ið, svo það var glóðheitt líkt og kyntur ofn. Lómagna af hitanum drógu menn andann við illan leik. Tvíhjólavagnarnir stóðu í röð við Lotsjinigil. Svo mjög hafði sjatnað í ánni í gilinu vegna þurrkanna að hún læddist milli steinanna á gilsbotninum. Vesælu vagneklamir, sem voru á leið til borgarinnar til að selja þar vín, lágu undir vögnunum örmagna af hitan- um og sneru andliti sínu til jarðar. Allir sváfu þeir en nokkrir strákar stóðu við árbakkann og helltu vatni úr tréausum á griðunga, sem lágu í leti og glenntu upp ginin. Fáein naut stóðu þarna jórtrandi með lokuð augu. Þau slógu til halanum til að fæla burt flugur. Sólin hélt til vesturs. Molluheitt loftið bærði á sér. Og þessi þögli stað- ur lét til sín heyra. Smám saman risu vagneklamir á fætur og hristu af sér deyfðina. Þeir helltu vatni á andlit sér og ráku eykin til að binda á þau klafana. Dýrin höfðu farið út dalinn að bíta þurrt gras eftir að hitinn frammi í dalnum varð þeim óbærilegur. „Hei, ho-o-o, hí-hoj“, heyrðist frá vögnunum, „landeyðurnar ykkar“ og ýmislegt þaðan af verra. Þegar klafarnir höfðu verið settir á griðung- ana og sá vagneklanna, sem sat á fremsta vagninum, reiddi upp svipuna til að mjaka dráttardýrinu úr stað, komu tveir piltar niður gilið. Báðir klæddust þeir hermannajökkum úr vaðmáli. Annar þeirra bar stóran Tsérkesahatt á höfði sér. Hatturinn sat þannig á höfði piltsins, að augljóst var, að hann var annars eign. Hinn drengurinn bar gamaldags rússneska hermannahúfu. Sá með Tsérkesahattinn virtist vera 16 til 17 ára að aldri, hinn aðeins 14 eða 15 ára. Andlit þess eldra var ekki viðkunnanlegt; grönn hakan, þreytuleg en þó snör og deplandi augun bentu til þess, að pilturinn sá væri ekki allur þar sem hann var séður. Yngri staulinn líktist þeim eldri á Jffiayáá- — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 27

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.