Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 31

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 31
í gálganum Gamli maðurinn opnaði matarskrín, færði bræðrunum brauð og skenkti þeim vín úr belg. „Jæja Petre,“ ávarpaði gamli maðurinn sjálfan sig. „Jafnvel hvolpar svelta ekki í hel í okkar blessaða landi, svo hverju kvíðið þið? Svona nú, borðið, synir mínir. Takið ekki þetta þurra brauð til marks um að við séum nískir. í nótt munum við gefa ykkur steikt kindakjöt, svo ljúffengt að sjálfur Tyrkjasoldán mundi sleikja út um byðist honum slíkt ljúf- meti.“ Petre tók báða drengina upp í vagninn til sín. Að því búnu var kallað til brottfarar og vagnalestin hélt af stað. Rykið þyrlaðist yfir þurran veg- inn. Þegar dró að matmálstíma þá um kvöldið, slepptu vagneklarnir naut- unum í haga nærri útjaðri borgarinnar. Komust þeir þannig undan nautaskatti. Þeir tóku bretti af vögnunum og kyntu bál. Petre steikti kindakjöt handa hinum ungu gestum og veitti þeim aðrar góðgjörðir sem hann mátti. Að loknum snæðingi lögðust menn þreyttir til hvílu og sofnuðu von bráðar. Griðungarnir tvístruðust um beitilandið, en verðir gættu þeirra. Petre breiddi kápu sína þar sem piltarnir skyldu leggjast og sagði: „Þið eruð göfugir menn og afberið því ekki að liggja á jörðinni eins og við.“ Sveinarnir lögðust fyrir og Petre nærri þeim. Hann leið útaf sem dauður væri. Það bjarmaði af degi. Vagneklarnir risu á fætur. Petre hugðist vekja bræðurna, en sá þá hvergi, eins þótt hann renndi augum yfir alla vagn- ana. „Fjandakornið!" hrópaði gamli maðurinn, þegar hann hafði fullvissað sig um, að yngissveinarnir höfðu laumast á braut. „Þeir skulu eiga mig á fæti. Læðast burt, ekki nema það þó“, tuldraði hann í barm sér. „Ein- hverju hljóta þeir að hafa stolið,“ bætti hann við“. Petre, sem fór til borgarinnar til að selja vín, var rændur! En hver gerði þetta? Brjóstmylkingar! Vasarnir skornir af fötunum. Fjandinn fjarri mér!“ „Hafa þeir stolið miklu?“ spurði einhver. „Ekki svo miklu, að eigi verði bætt,“ ansaði Petre. „En söm er mín smán. Ég hef verið rændur af brjóstmylkingum. Nú er ég orðinn að viðr- ini í augum ættmenna minna og nágranna. Ja, fyrst Georgíumaður setti upp rússneskan hatt er útséð um samvisku hans.“ Hann lét sem sér þætti lítið til skaðans koma og freistaði þess að slá þessu öllu upp í grín. En í rauninni skammaðist hann sín. á /ýíœy/'já — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 29

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.