Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 35

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 35
/ gálganum sér að vesalingnum og hratt honum upp stigann. Að því búnu brá hann snörunni um háls honum. Múgurinn þagnaði, líkast því sem ekki slægi lengur hjarta í brjósti nokkurs manns. Böðullinn spyrnti í stigann og felldi hann. Fólkið hólt niðri í sér and- anum uns allt var afstaðið. Þá andvarpaði það, líkast því sem það hefði orðið fyrir smávægilegum óþægindum. En í gálganum sveiflaðist aum- ingja maðurinn fram og aftur - fram og aftur. Hann sparkaði út í loftið og sparkaði lengi. Fólkið, sem skömmu áður hafði staðið á öndinni, tók skjótt gleði sína og hafði jafnvel í frammi spaugsyrði. Svo yfirgaf þessi skríll torgið og tvístraðist. Allir hurfu á braut, ánægðir með að hafa orðið vitni að þess- um tryllta leik. Petre litaðist um. Hann sá enga hermenn utan tvo, sem stóðu vörð við gálgann. Allir hinir voru farnir. Böðullinn, sá í rauðu skyrtunni, skipti um föt og hélt sína leið. Eftir hókk vesalingurinn í gálganum, dauður og hreyfingarlaus. Petre horfði í kringum sig í for- undran. „Ja hérna, ljótur var nú leikurinn! Skyldi annars hafa verið skipt á piltinum og sekknum og sekkurinn svo hreyfður til með vír? Best væri að dægra í fjósi og sofa almennilega. Skyldi maðurinn í raun og sann- leika hafa verið hengdur? Nei, fólkið hlyti þá að hafa fellt tár, í það minnsta smávegis. Pilturinn er þó barn Guðs, en ekki eins og hver ann- ar köttur." Illur grunur ásótti Petre. Hann varð að ganga úr skugga um, hvort hér hefði átt sér stað raunveruleg henging eða aðeins verið um spaug að ræða. Sannleikurinn yrði að koma í ljós! Hugðist hann ná tali af ein- hverjum og spyrjast fyrir um málið. Gekk hann að ýmsum, sem á vegi hans urðu, en hikaði þegar á hólminn var komið. Petre rölti áfram. Nú var hugurinn bundinn fjósinu í Avlabari. Á ferð sinni sá hann vertshús. Þaðan barst mikill skarkali. „Ætti ég að smokra mér inn fyrir?“ hugsaði hann. „Hver veit nema ég verði einhvers vísari varðandi það, sem gerst hefur? Svo er ekki að vita nema hér megi fá sér eitthvað að narta í. Ekki veitir mér af, ég hef ekki bragðað matarbita frá því í rnorgun." Hann gekk inn í húsið, settist út í horn og pantaði sér hálfa flösku víns. Nú skyldi slegið upp lítilli veislu, þótt enga hefði hann þar gestina. Um leið og Petre settist, kom ungur maður inn vertshúsið, fast á hæla honum. Hann var klæddur í hælsíða skikkju. Hann bað um skriffæri, beygði sig yfir borð og tók til við að skrifa. Petre einblíndi á manninn. Honum kom andlitið kunnuglega fyrir sjónir. Ungi maðurinn hélt áfram að skrifa án þess að líta upp. Tíminn leið, en Petre kærði sig kollóttan á — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 33

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.