Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 37

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 37
I gálganum „Heldurðu að nú sé tími til að telja peninga? Lestu hvað í bréfinu stendur áður en hjarta mitt springur úr forvitni!" Sonurinn hóf upp lesturinn: „Strákurinn, sem hengdur var í dag, var bróðir minn...“ „Hvað þá!“ greip Petre fram í fyrir syni sínum. „Þeir hafa þá í raun og veru hengt hann!“ Andlit gamla mannsins náfölnaði. „Hvað var það þá, sem vakti kátínu fólksins? Jæja, lestu, lestu! Ó, að augu mín væru lukt eilífu myrkri.“ „Hvað segir þú faðir minn?“ spurði sonur hans. „Þú talar eins og þú værir sturlaður." „Lestu, ég er með ráði og rænu,“ sagði Petre reiðilega og í mikilli geðs- hræringu. Hann skalf líkt og hann þjáðist af hitasótt. Sonur hans hugs- aði sitt en hélt þó áfram lestrinum: „Faðir okkar var fátækur aðalsmaður. Þegar hann dó giftist móðir okk- ar öðrum aðalsmanni, sem starfaði í borginni. Hafði hann af okkur arf okkar, skipti honum fyrir vörur eða seldi fyrir peninga. Eftir sátum við með sárt enni. Meðan við vorum enn á barnsaldri dvöldum við í sveit, en móðir okkar og stjúpi höfðust við í borginni. Þegar þau komu á dvalar- stað okkar húðstrýktu þau okkur, slíkar voru barsmíðarnar. Hungraðir og klæðlausir reikuðum við um sveitina. Allir gengu í skrokk á okkur, meira að segja vinnuhjúin, þá sjaldan þau lágu ekki í leti. Ýmsum vandalausum blöskraði þessi meðferð, án þess þó að hafast að. Þegar við svo komumst á legg, losaði stjúpi okkar sig við okkur og sendi okkur á herskóla. Þar var sál okkar eitruð með rússneskum skömmum og for- mælingum. Auk þess vorum við nær dauða en lífi undan barsmíðum, jafnt að nóttu sem degi. Þetta var meira en við þoldum. Strukum við því í skjóli myrkurs. Héldum við heim í sveit okkar. Þar komum við okkur fyrir í gömlu húsi. En liðléttingar spörkuðu okkur þaðan út. Þannig hröktumst við á ver- gang, brauðlausir, heimilislausir, örvinglaðir og einmana. Engum virtist sárna hrakfarir okkar. Við vorum öllum framandi. Fólk taldi okkur að- eins þvælast íyrir sér. Héldum við nú til borgarinnar, harðskeyttir menn og illgjarnir. Við hötuðumst út í lífið sjálft og einkum þó stjúpa okkar. Og við fjandsköpuðumst jafnt við góða menn sem vonda. Var móðir okkar ekki undanskilin í þeim efnum. Öllum mátti ljóst vera, að við höfðum verið rændir föðurarfi okkar. En hverjum stóð ekki á sama um það? Menn vildu hvorki veita okkur lið né vægð. Sú synd hvílir jafnt á öllum. Það var ekki aðeins stjúpfað- ir okkar, sem rændi okkur, heldur allir, þú ekki síður en aðrir. Ég á ykk- ur öllum grátt að gjalda og fyrir því skuluð þið finna meðan ég lifi. Öll á JÍ3egýr/áá — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.