Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 40

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 40
Giorgi Leonidze Óskatréö Elepter djákni stóð á þorpstorginu. Þetta var að kvöldi dags og hann dreifði huganum á skrafi við bændur. Þetta var sá sami Elepter sem mán- uði fyrr hafði verið barinn til óbóta af heldur svona mislyndum gestum í afmælisveislu. Hvers vegna hann heitir Elepter? Nú jæja, um téðan Elepter hafði sóknarpresturinn oftsinnis sagt: „Ætti ég tvo Eleptera, skyldi óg hiklaust hengja annan þeirra.“ Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina. Sannast sagna var hann maður veisluglaður, drabbari, vínsvelgur! Við tíðasöng las hann helgiritin þurrlega, allt að því umlandi. En þegar hann vitnaði til þeirra orða hinnar helgu bókar, að hóflega drukkið vín gleðji mannsins hjarta, þá skorti nú hvorki kærleikann í röddina né tilþrifin. Um sólarlag hurfu bændurnir til nauta sinna og þorpstorgið tæmdist. Þá stóð enginn annar frammi fyrir hinum aðgerðarlausa djákna en hann Elíoz - snauðastur bænda. „Veistu ekki, þú hnípni bróðir," ávarpaði djákninn Elíoz, „að Vesjalind er vatn ódauðleikans." Djákninn þreif könnu úr höndum stúlkunnar Abdiu, sem átti þar leið um. Hann bar könnuna að vörum sér. Fyrst rétt bergði hann á vatninu. Því næst svelgdi hann það í sig. Að því búnu sagði hann ofur rólega og líkt og sætkenndur af hamingju: „Karl minn góður, svei mér þá, veistu ekki hvar Vesjalind er?“ „Hvar er sú lind?“ spurði Elíoz. „Á Hvítufjöllum!" „Og hvað læknar hún?“ „Hún er ekkert lyf, heldur óðdauðleikinn sjálfur!" „Hvað er ódauðleiki?" „Það er eilíft líf!“ Elíoz var mjög brugðið. Hann hörfaði aftur á bak. „Ekki hirði ég um slíkt,“ sagði hann, þá loks hann mátti mæla. „Hvað stoðar að bæta písl við skort?“ 38 éá - Tímarit þýðenda nr. 6 / 2001

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.