Jón á Bægisá - 01.12.2001, Qupperneq 64

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Qupperneq 64
Lars Saabye Chrístensen Hann skimaði í kringum sig og gekk að öðrum steini, leit undir hann, fann ekkert og hljóp svo að næsta steini og velti honum við, fann held- ur ekkert þar, og svona hélt hann áfram að lyfta öllum steinunum á svæðinu. Loksins kom hann aftur. - Ég er viss um að ég lét hana hérna, nei annars, bíddu. Hann horfði upp eftir hlíðinni. - Kannski var það ofar í brekkunni sem ég faldi hana. Ég greip í handlegginn á honum. - Af hverju geymirðu byssuna hérna? - Til þess að Ester geti ekki fundið hana. Ég sagðist hafa hent henni í sjóinn. En ég faldi hana hérna. - Til hvers ertu með skammbyssu hér? Nágranninn leit á mig. - Ég er veikur, skilurðu. Ester veit ekkert um það. En ég á ekki langt eftir. Hann settist þyngslalega á steininn og fól andlitið í höndum sér. - Svo ég ætlaði að fara hingað uppeftir. Þegar tíminn væri kominn. Svo reis hann snöggt á fætur. Hann riðaði og ég varð að styðja hann. - Segðu ekkert við Ester. Þetta er okkar á milli, Guðs og mín. Hann hélt áfram upp urðina. Hann velti hverjum steininum á fætur öðrum. Ég hafði ekki við honum, svo að ég sneri aftur niður að húsinu. Kötturinn lá ekki lengur í grasinu. Ég leitaði um alla lóðina. Hlustaði en heyrði ekkert væl lengur. Loksins fann ég kisu bak við eldiviðarstaflann. Hún lá þar grafkyrr. Bærði ekki á sér. Það var storknað blóð á feldinum. Ég lagðist á hnén og snerti við henni. Hún var steindauð. Ég velti henni við og sá stórt, kringlótt sár við eyrað, skotsár, kúlan hafði farið gegnum hausinn og út hinum megin. Ég heyrði í einhverjum fyrir aftan mig. Það var Ester, nágrannakonan. Hún brosti og lagði höndina á öxlina á mér. - Ég varð að gera það. En segðu Einari ekki frá því. Svo fór hún aftur inn í húsið sitt. Ég settist smástund á eldiviðarhrúguna og horfði á Simone. Einu sinni hvarf hún í heila viku. En hún kom aftur. Ég vaknaði við að hún hopp- aði upp í rúmið til mín. Ég hafði nefnilega útbúið op á útihurðina þar sem hún gat komist inn og út. Hún svaf í hálfan sólarhring. Þá sauð ég handa henni nýveiddan fisk. Síðan fékk hún skeið af rjómaís á eftir. Og svo er til fólk sem segir að kettir kunni ekki að brosa. - Nei, nú er nóg komið, Simone, sagði ég við sjálfan mig, ég sagði það upphátt og það lá við að ég yrði hræddur þegar ég heyrði í mér röddina. Ég náði í skóflu út í skemmu og gróf hana þarna á staðnum. Og af því 62 J%>>/ á .HBœy/rjá - Tímarit þýðenda nr. 6 / 2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Jón á Bægisá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.