Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 75
Erlendir höfundar
Lars Saabye Christensen (Strange Fruit bls. 59) fæddist í Osló 1953.
Fyrsta bók hans var ljóðasafnið Historíen om Gly (1976) en fyrir það
hlaut hann byrjendaverðlaun kennd við Tarjei Vesaas. Þrátt fyrir að hann
hefur gefið út fleiri ljóðasöfn er hann fyrst og fremst þekktur sem skáld-
sagnahöfundur. Hann hafði reyndar sent frá sér þrjú ljóðasöfn og þrjár
skáldsögur er hann sló í gegn með skáldsögunni Beatles (1984), þroska-
sögu sem ratað hefur inn á námsbókalista í mörgum norskum framhalds-
skólum. Sögusvið flestra sagna hans er vesturbærinn í Osló. Lars Saabye
Christensen hefur einnig skrifað kvikmyndahandrit, svo og leikrit fyrir
útvarp og sjónvarp, og nokkrar af sögum hans hafa verið kvikmyndaðar,
þar á meðal skáldsögumar Herman og Gutten som ville være en avgutta.
Hann er félagi í tónlistarhópnum Norsk Udflukt og hefur farið í tónleika-
ferðir og gefið út geislaplötur með honum. Hann hefur hlotið fjölmargar
viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín. - Sagan sem hér birtist er tek-
in úr smásagnasafninu Noen som elsker hverandre (1999).
Lars Saabye Christensen hefur verið tilnefndur til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs árið 2001 fyrir nýútkomna skáldsögu sína
Halvbroren.
Miheil Dsjavahísjvílí (Steinn Satans bls 15) fæddist í Georgíu 1880.
Hann var af bændaættum og var um tíma við nám í garðyrkju í Jöltu á
Krímskaga. Þegar heim kom lagði hann þó ekki stund á garðrækt heldur
bókmenntir. Samfara skáldskap og öðrum ritstörfum var hann virkur í
georgískum stjórnmálum, ekki síst í samtökum skálda og rithöfunda. Eitt
höfuðyrkisefni sagna hans voru utangarðsmenn af ýmsu tagi; þekktust er
skáldsagan Arsena Marabelí frá miðjum 4. áratug 20. aldar. Bolsévíkar
komust til valda í Georgíu 1921 og tóku brátt að þjarma að höfundum og
öðrum menntamönnum undir forystu Lavrentis Beria. Mun val yrkis-
efna ásamt örðu hafa orðið þeim tilefni til að handtaka Miheil Dsjavahí-
á — Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina
73