Jón á Bægisá - 01.12.2001, Qupperneq 78

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Qupperneq 78
Erlendir höfundar Knuts nam sögu og málvísindi við ríkisháskólann í Lettlandi og í Max- im Gorki bókmenntastofnuninni í Moskvu. Aðeins ári eftir að Knuts lauk námi var hann handtekinn af pólitískum ástæðum í apríl 1962 og dæmdur í vinnubúðavist. Hann dvaldi 7 ár í vinnubúðum. Hann var dæmdur fyrir að þegja og neita að tala gegn sannfæringu sinni. Hann hafði verið kvæntur konu sinni, Intu, í aðeins 8 mánuði þegar hann var sendur til Mordovíu þar sem hann var meðal annars látinn setja saman húsgögn. Nú starfar Skujenieks sem ljóðskáld, ritgerðasmiður, gagnrýnandi og þýðandi. Hann hefur meðal annars þýtt úkraínsk, pólsk, júgóslavnesk, búlgörsk, grísk og íslensk ljóð á lettnesku, þar á meðal rímnaflokka, með- al annars um Ólaf Liljurós. Knuts orti nokkur ljóð um dvöl sína á íslandi (1993) sem hann kallar Kveðju frá íslandi og birtust þau í virtu bók- menntatímariti í Lettlandi og síðar í nýjustu ljóðabók hans. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar bæði heima og erlendis. Hjalmar Söderberg (Tússteikningin bls. 71) fæddist í Stokkhólmi 1869 og lést í Kaupmannahöfn 1941. Hann lauk stúdentsprófi 1888 og hóf sama ár störf á aðalskrifstofu tollheimtunnar í Stokkhólmi. Þar vann hann í átta ár en gerðist blaðamaður við ýmis blöð, meðal annars Göte- borgs Handels och Sjöfarts-Tidning. Hann dvaldist með hléum í Kaup- mannahöfn en frá árinu 1917 hafði hann þar fasta búsetu. Efasemda og vantrúar sér víða stað í verkum Hjalmars Söderbergs, líklega að hluta til vegna áhrifa tíðarandans. Stíll hans er vitsmunalegur og fágaður og honum tekst einatt að koma miklu til skila með fáum ein- földum orðum. Enda þótt hann teljist fálátur höfundur á ytra borði og sjái fyrir sér heiminn eins og sá sem misst hefur trúna á hið góða í tilver- unni, dylst mönnum ekki samlíðan hans, einkum með þeim sem verst eru settir. Hjalmar Söderberg var afkastamikill höfundur. Hár verða aðeins talin nokkur verka hans: Historietter (1998; Tússteikningin er tekin úr því safni), Martin Bircks ungdom (1901), Doktor Glas (1905), Gertrud, leik- rit (1906), Det mörknar över vagen (1907), Den allvarsama leken (1912). Lítið hefur verið þýtt á íslensku af verkum Hjalmars Söderbergs. Þó mun hafa komið út þýðing á einu verka hans árið 1940 undir heitinu fesús Barrabas, minningar Jágerströms flokksforingja (þýðanda er ekki getið). Þá þýddi Þórarinn Guðnason bókina Doktor Glas og kom hún út 1942. August Stramm (Þunglyndi bls. 58) fæddist 1874 í Munster í Þýska- landi. Faðir hans var embættismaður hjá póstinum og að skólagöngu 76 d Jffiay/öd - TÍMARIT ÞÝÐENDA NR. 6 / 2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Jón á Bægisá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.