Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 7

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 7
Ögmundur Bjarnason Um skáldið W.H. Auden i Islendingar hafa löngum tekið fagnandi þeim útlendu mönnum sem látið hafa svo lítið að sækja heim þessa fámennu og afskekktu þjóð í norðri, eink- anlega ef þeir hafa getið sér eitthvert nafn úti í hinum stóra heimi. Suma hafa þeir jafnvel nefnt „Islandsvini" í heiðursskyni, sér í lagi ef gesturinn hefur með einhverjum hætti haldið nafni landsins á loft meðal sinnar eigin þjóðar eða sýnt landi og þjóð sóma á annan hátt en með nærveru sinni einvörðungu. Og víst hefur margur merkismaðurinn lagt hingað leið sína, annaðhvort vegna fregna af einstæðri náttúru landsins eða - sem ekki mun hafa verið ótíðara hér fyrr meir - íyrir sakir dálætis síns á fornum bók- menntum landsmanna. Hafa ýmsir þessara manna jafnvel orðið til þess að lýsa á bók kynnum sínum af landinu og þjóðinni, og þannig orðið Islandi og íslenskri menningu eins konar málpípa meðal þjóða heimsins, þar sem oft hefur verið við ramma fordóma og rangfærslur að etja, allar götur síðan Blefken hinn þýski setti saman alræmda íslandslýsingu sína. En raunar er þjóðin orðin svo óspör á téða virðingarnafngift hin síðari ár, að hingað má nú varla villast sú útlenda kvikmyndastjarna eða poppgoð að hún sé ekki umsvifalaust sæmd nafnbótinni „Islandsvinur“ og persónu hennar hampað af fjölmiðlum og almenningi sem væri þar á ferðinni sérstakur velgjörðar- maður landsins og velunnari, jafnvel þótt viðkomandi geti fátt annað sagt gestgjöfum sínum til þakldætis en að ljúka lofsorði á ríflegan opnunartíma öldurhúsa og frjálslegt viðmót þess hluta kvenþjóðarinnar sem slíka staði sækir. En hvaða fremd sem þjóðinni kann að vera að því að eiga þess konar gesti að vinum, þá er hitt vafalaust að seint fær hún ofmetið vinskap þeirra manna, sem hingað hafa leitað af forvitni um fleira en skemmtanalíf höf- uðstaðarins og tillátssemi fríðara kynsins, og freistað hafa þess að kynna heiminum sögueyjuna köldu og ljá henni þannig rödd meðal milljónanna, jafnvel þó í litlu væri. Einn slíkra manna var breska skáldið W.H. Auden, sem af mörgum er talinn eitt ágætasta skáld enskrar tungu á tuttugustu öld, enda þótt á dffiaytjá — Hann gat ekki hætt að ríma 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.