Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 26

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 26
W.H. Auden 6. „A skáldsagnahöfiindurinn fyrir spón íaskinn?" Hinir best kunnu höfundar og myndlistarmenn þiggja opinberan fram- færslustyrk, án nokkurra kvaða um listsköpun þeirra. Ymsir (og þá jafnan hægrisinnaðir) kvörtuðu undan því í mín eyru að stjórnmálaskoðanir hefðu áhrif á styrkveitingarnar; mér tókst samt ekki að finna nokkrn málsmetandi höfund sem orðið hefði útundan við þær. 7. „Segðu mér afunga fólkinu. Um hvað hugsar það? Hver eru markmið þess?“ Sem þjóðarheild, hygg eg að Islendingar séu ekki tiltakanlega metnaðar- fullir. Einstaka ungir menn af efnaheimilum gætu víst hugsað sér að flytjast til Evrópu; flestir munu hins vegar helst kjósa að vera um kjurt og komast í nokkrar álnir. Samanborið við flest lönd er atvinnuleysi með minnsta móti á Islandi. Eg fékk þá almennu mynd af Islendingum að þeir væru raunsæir, á smáborgaralegan hátt, óskáldlegir og harla litlir hugsjónamenn. Ólíkt Þjóðverjum sverma þeir ekki fyrir suðurlöndum, og mér er lífs ómögu- legt að sjá þá fyrir mér í einkennisbúningi. Viðhorf þeirra gagnvart forn- sögunum er áþekkt viðhorfi hins almenna Englendings til Shakespeares; og einn einasta mann fann eg, málara nokkurn, sem dirfðist að kalla þær “heldur rustalegar”. Vandkvæðin, sem eru á því að útvega sér atvinnu í ýmsum Evrópulöndum, gera íbúa þessara landa oft óábyrga og móttækilega fyrir öfgafúllri föðurlandshyggju; Islendingar eru hins vegar sjaldan óábyrg- ir, enda myndi slíkt háttalag koma bændum og útvegsmönnum í koll. 8. „Hvað um kynferðislíf þeirra?" Óþvingað. Óskilgetin börn eru sjaldnast litin hornauga. Innan fjölskyld- unnar eru hjágetnir aldir upp til jafns við skilgetna. Aður en samgöngur bötnuðu var blóðblöndun oft og tíðum lítil. Var mér bent á bónda einn sem hafði gengið að eiga frænku sína með sérstöku leyfi Danakonungs. Kynhverfa mun vera fátíð. Talsvert er um kynsjúkdóma í sjávarplássum, og hin síðari ár hafa þeir farið að berast í sveitirnar. Eg hef ekki orðið þess var að hið opinbera hlutist til um barneignir: það virðist ekki vera neitt sérstakt keppikefli að fjölga landsmönnum. Fólksflutningum í Vesturheim, sem voru miklir í kringum aldamótin, hefur nú linnt. 9 ■ „Er til sérstök íslenskfyndni?“ Landsmenn eru sérlega gefnir fyrir hæðnisleg níðskrif. Eins og við er að búast í litlu samfélagi eru flestar skrítlurnar sagðar um áberandi persónur og erfitt fyrir utanaðkomandi að botna í þeim. Haldið er úti gamansömu vikuriti sem nefnist Spegillinn, og líkist fremur Simplicissimus en Punch. Eg sá engin dæmi um þess konar ruddafengið skop sem iðkað er í Islendingasögum. 24 á- Sœyrtíá — Tímarit þýðenda nr. ii / 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.