Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 27

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 27
Islandsfór ogfleirí kvœði io. „Hvaða hugmyndfékkstu af heimsókninni um lífið á smáeyjum?“ Eigirðu þér engin sérstök andleg áhuga- eða metnaðarmál og gerir þig ánægðan með félagsskap vina og vandamanna, þá ættirðu að una þér vel á Islandi, enda eru eyjarskeggjar vingjarnlegir, þolgóðir og skynsamir. Þeir eru innilega stoltir af landi sínu og sögu, en án minnsta votts af sjúklegum þjóðarrembingi. Mér virtist þeir jafnan taka gagnrýnisorðum fegins hendi. En eg fann það þó jafnframt, að hvað sjálfan mig áhrærði var of seint af stað farið í þessa heimsókn. Við erum öll of bundin Evrópu til þess að geta sloppið undan henni, eða til þess að langa til þess. Þótt eg sé þess fullviss að þú myndir njóta Islandsheimsóknar jafnmikið og eg hef gert, þá hygg eg að þegar fram í sækir, myndi hin norræna skynsemi reynast þér um megn, eins og hún hefúr reynst mér. Sannleikurinn er sá, að báðir erum við aðeins í essinu okkar búandi innan um brjálæðinga. W. Fjórtándi kapítuli Bréf til Kristins Andréssonar, dándimanns. Kæri Kristinn Andrésson, eg hét þér því þegar eg var í Reykjavík að senda þér greinargerð fyrir því hvernig landið þitt hefði komið mér fyrir sjónir, og nú þegar eg hef snúið heim aftur get eg ekki annað en gert mitt besta til að uppfylla það, sem örlítinn þakklætisvott fyrir þína óþreytandi gestrisni og hinar Ijúffengu pönnukökur konu þinnar. Samt er eg efins um að álit ferðamannsins sé ýkja mikils virði; stundi hann enga atvinnu í landi því sem hann heimsækir er þekking hans á efnahagslegum og félagslegum aðstæðum einskorðuð við opinberar hagtölur og kjaftasögur við kaffiborðið; þekki hann ekki tungu- málið er mat hans á mönnum og menningu takmarkað við hið yfirborðs- kennda; og lengd heimsóknarinnar, í mínu tilviki einungis þrír mánuðir, varnar honum allra náinna kynna af athugunarefninu. I besta falli verður hann þess eins vís sem heimamenn vita þegar; í versta falli gerir hann sig sekan um viðsjálar alhæfingar sem byggðar eru á ófullnægjandi og oftlega ónákvæmum upplýsingum. Þess utan kemur ferðamaðurinn, óháð því hver félagsleg staða hans er í sínu heimalandi, ávallt fram í því landi sem hann gistir í hlutverki fjármagnseigandans — gestgjafi hans væntir þess alltént að hann hafi nokkur fjárráð - og mun því horfa á land og þjóð með augum fjármagnseigandans: verðið á máltíðinni og þjónustulund vikadrengsins snerta hann dýpra en aukin tíðni krabbameinstilfella eða spilling í réttar- kerfinu. Þá gerir að síðustu fjarlæg lega Islands ásamt bókmennta- og d jBœyrtíá - Hann gat ekki hætt að ríma 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.