Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 30

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 30
W.H. Auden Efiiahagur og stéttaskipting Þeir menn af borgarastétt sem heimsótt hafa Island láta þess oft getið að þar sé enginn munur á fátækum og ríkum. Við fyrstu athugun virðist það vera rétt. Þarna eru engin slot, eins og þau í Mayfair, og heldur engin hreysi, eins og þau á East End. Bæði laun og almenn lífsgæði eru mikil í samanburði við önnur lönd; og stéttaskipting er minni en í flestum kapítaliskum löndum. En þegar maður minnist þess að Island er að flatarmáli stærra en Irland, að íbúaþöldi þess er minni en Brighton og það ræður yfir einhverjum bestu fiskimiðum veraldarinnar, hlýtur maður að spyrja sig þess hvort launin gætu ekki verið enn hærri og efnaleg misskipting minni. Eg sá fjölmargt fólk sem eg vildi ekki deila kjörum með, og einstaka menn sem auðurinn hafði gert hrokafulla, oflátungslega og lítilsiglda. A Englandi höfum við sérstaka hefð- bundna lífs- og lifnaðarhætti fyrir yfirstéttina, sem léð geta auðmönnum ákveðinn þokka. Á Islandi fyrirfinnast engir slíkir. Menntun og menning Sú þjóð, sem getið hefur af sér einhvern stórbrotnasta sagnaskáldskap heims- bókmenntanna, getur státað af almennri þekkingu á kveðskap og vísnagerð og hérumbil 100% læsi, má með réttu vera stolt af sjálfri sér, og þótt eg leyfi mér að koma fram með einhverja gagnrýni, er það ekki vegna þess að eg vanmeti afrek hennar heldur vegna hins, að frá þeirri þjóð sem svo miklu hefur áorkað hlýtur maður að vænta enn meira. Hvað menntun viðvík- ur, virtist mér menntunarstig landsmanna almennt allhátt; og hygg eg að sá siður, að láta skólafólk vinna sveitastörf á sumrum, hljóti að skapa hið ákjósanlegasta jafnvægi milli bóklegrar og verklegrar menntunar - raunar kysi eg að hin bóklega menntun væri öllu klassískari við þessar óvenjulegu aðstæður — gríska og líkamlegt erfiði virðast mér hin ákjósanlegasta mennt- unarblanda. Hinar æðri skólastofnanir, efstu bekkir menntaskólans og há- skólakennslan, virtist mér hins vegar ekki vera upp á marga fiska. Eg veit þó vel, að þetta er hérumbil alfarið undir fjárframlögum komið. Eg leyfi mér að benda á það eitt, að koma ætti upp skóla fyrir afburðagreind börn, sem valin væru víðs vegar af landinu með sérstöku upptökuprófi. Hvað almennan menningarbrag snertir, er hann allhár, en þó ekki jafn- hár og ýmsar heimildir gætu fengið mann til að halda. A meðan eg heyrði eldastúlku eina úti á landi gera miðaldasögu prýðileg skil, eru þeir á hinn bóginn augljóslega fjölmargir í bæjunum, einkanlega í Reykjavík, sem misst hafa hina sérstöku þjóðlegu menningu sína, án þess að öðlast nokkra aðra í staðinn. Enda þótt bókmenntir séu víðast hvar í hávegum hafðar, eiga landsmenn nálega engan arkítektúr, enga leiklist og hafa ákaflega litla þekkingu á málaralist og hljómlist. Eg veit vel að þetta er óhjákvæmilegt. Eg veit vel, að dagar sjálfstæðrar 28 á dföœpáá - Tímarit i>Ýðenda nr. ii / 2007
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.