Jón á Bægisá - 01.02.2007, Blaðsíða 82
Matthías Johannessen
aldrei haft gaman af að vera á hestbaki, það er kannski vegna þess ég er
fæddur og uppalinn í sveit.“
Svo kvöddust þeir og við gengum inn í Skálann.
Auden svipaðist um. Hann pantaði kaffi handa tveimur. Mér fannst
hann enn sama persónan og stendur á bak við skrifin í Letters from Iceland,
hispurslaus, forvitinn. Eg sagði:
„Þér eruð auðvitað orðinn dauðþreyttur á blaðamönnum.“
„Ég hef meira gaman af að hlusta á fólk en tala sjálfur.“ Hann kveikti
sér í Lucky Strike. Hann hefur verið lengi í Ameríku. „Þér fóruð vestur á
ísafjörð?"
„Já, þar hef ég átt skemmtilegar stundir."
„Finnst yður mikill munur á því Islandi sem þér nú hafið séð eða land-
inu eins og það kom yður fyrir sjónir 1936?“
„Ég hef ekki verið hér nógu lengi til að geta svarað því. Það er samt
augsýnilegt, að sums staðar er meiri velmegun. Hér eru margir einkabílar
og vegirnir eru fleiri og betri en þá. Reykjavík er tvisvar sinnum stærri,
framfarir augljósar. Nú er stór bátur í förum um Isafjarðardjúp, en þá
þurfti maður að leigja sér mótorbát fyrir 40 krónur, eða 10 pund. Það var
dýrt spaug. I þetta sinn hef ég ekki komizt í kynni við neitt, sem ekki er
hverjum manni augljóst við fyrstu sýn. Utvarp er alls staðar, mér geðjast
ekki að því. Og þó læt ég það vera í heimahúsum. Þar sem hægt er að
skrúfa fyrir það. En mér líkar það ekki á opinberum stöðum. Ég hef heyrt,
að ýmsir Reykvíkingar hafi reiðzt mér fyrir bókina. Þá var ég ungur og lét
ýmislegt flakka. Stutt kynni af borg hljóta að vera yfirborðsleg, það sem
maður getur metið er: arkitektúrinn og maturinn, hvorugt til fyrirmyndar
1936. En maturinn hefur vafalaust batnað síðan.“
„Er nokkuð sem þér saknið sérstaklega?“
„Nei. Landið er jafn æsandi. Norðrið hefur alltaf freistað mín. Fyrir
tveimur árum fór ég til Hammerfest í Norður-Noregi. Það var stórkostlegt.
Þjóðverjar lögðu þorpið í eyði 1945, hvert einasta hús, en nú hefur það verið
byggt upp aftur.“
„Þér minnizt á Þjóðverja í Lettersfrom lcelandJ
„Ég talaði um nazistana, sem voru hér á ferðalagi um svipað leyti og
ég. Ég hitti bróður Görings á Akureyri.“
„Nei, það var á Hólum.“
„Jæja, einmitt á Hólum. Ég hitti líka einhverja Þjóðverja við Mývatn.
Þeir voru alltaf að tala um Islendinga sem fyrirmynd germanska þjóð-
flokksins. Það var óþolandi.“
„Á einum stað í bókinni verðið þér reiður vegna þessa skrafs Þjóðverja
og segið að þeir geti þá átt þetta íslenzka þjóðfélag með gangsterdyggð
Sagnanna, ef ég man rétt.“
80
á Ææý’ásá — Tímarit þýðenda nr. 11 / 2007