Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 83

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Page 83
MaSur md ekki Ijúga í Ijóði „Það getur verið, ég man það ekki. En ég hef alltaf kunnað að meta Sögurnar. Það er einkennilegt hvað persónur þeirra eru dregnar upp á lík- an hátt og nú gerist. Sögurnar eru mjög nútímalegar að allri gerð. Höf- undar þeirra voru langt á undan sínum tíma. Það er merkilegt hvað þeir hafa hlutlausa afstöðu til persónanna og segja frá skýringalaust. Það má gera ráð fyrir að höfundur Njáls-sögu hafi verið kristinn maður, en hafið þér tekið eftir því hvað hann segir hlutlaust frá kristnitökunni? Já, ég hef alltaf dáðst að Sögunum. Fólkinu er lýst eins og nú er gert. Og það er gam- an að sjá hvaða hlutverki konan gegnir í þessum gamla skáldskap. Gömlu söguhetjurnar gátu aldrei haft hemil á kerlingunum sínum, ef marka má lýsingar Sagnanna.“ „Eigið þér við að það sé líka nútímaleg afstaða?“ Skáldið hló: „Nei. En konurnar höfðu frelsi, þær höfðu meira að segja frelsi til að hleypa öllu í bál og brand. Hallgerður, Guðrún ...“ „Eitt kemur mér spánskt fyrir sjónir í Lettersfrom Iceland. Þér segið að karlmenn séu betur klæddir en kvenfólkið.“ „Já, þannig var það þá.“ „En flestir útlendingar sem koma til Islands dást að íslenzku stúlk- unum.“ „Þeim hefur farið mikið fram í klæðaburði." Við snerum talinu aftur að Sögunum. Auden sagði: „Eg var að segja blaðamanninum í morgun, að það hefði ávallt heillað mig, hve vel Islendingar skrifuðu prósa mörgum öldum áður en slíkar sög- ur voru skrifaðar annars staðar í Evrópu. En það skringilega er, að Engil-Saxar voru að tileinka sér þessa tækni einmitt á sama tíma og norrænir víkingar gerðu strandhögg á Bretlandseyjum og eyðilögðu allt saman. Astæðan til þess að Islendingar skrifuðu þessar sögur var tvenns konar; í fyrsta lagi voru skáldakvæðin svo flókin og erfið, að það var ómögulegt að segja sögur í þeim, eins og gert var í ljóðum annars staðar í Evrópu; í öðru lagi losnuðu Islendingar við latnesku mælskulistina, sem hafði mikil áhrif annars staðar og Evrópa hefur til dæmis aldrei ætlað að losna við. En by the way, ég mun vera eini Englendingurinn sem hefur ort fullkomið dróttkvæði. Fyrsta skáldverk í líkingu við Sögurnar var skrifað í Englandi á 15. öld. Ég varð mjög undrandi þegar ég las fyrst bók eftir Hemingway, því mér fannst ég hafa lesið þennan stíl áður, klipptan og skorinn. Þegar ég athug- aði málið sá ég í hendi mér að stíll hans var í ætt við Sögurnar. Samt veit ég ekki til, að hann hafi lesið Islendingasögur.“ „Þér umgangizt margt merkra manna erlendis. Hafið þér sagt þeim frá Sögunum?“ „Já, auðvitað kem ég þeim að. Og þegar þetta fólk hefur lesið þær, hefur því oftast þótt mikið til koma. En sumum finnst ættartölurnar leið- á ./It'ryróá - Hann gat ekki hætt að ríma 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.