Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 94

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 94
Ragnar Jóhannesson og á borðsenda húsfreyjunnar var nóg lostæti og kökur, sem við vorum vanari. Auden át jurtarétti Jónasar læknis með beztu lyst, og varð yfirleitt mjög dátt með þeim. A. skoðaði sjúkrahúsið í fylgd með lækninum. Ekki var hann eins hrifinn af Tindastóli, þar sem við gistum um nótt- ina. Hann segir: „Mig langar ekkert til að koma til Sauðárkróks aftur. - í herbergi mínu í gistihúsinu voru tvær útsaumsmyndir - „Lof sé Drottni“ og „Sælir eru hjartahreinir“ - og léleg prentmynd af fyrsta fiskiskipi á Is- landi, ársett 1876. - Það brakaði í skipinu alla nóttina." Nú skyldi halda heim að Hólum. Engar áætlunarferðir voru þangað, og ekki tímdi Auden að leigja sér bíl, svo að við réðumst til ferðar með mjólkurbíl. Var það hin versta ferð, að því leyti, að farartæki þetta tók á sig alla þá króka, sem kostur var á í neðanverðum Skagafirði, til þess að skila mjólkurílátum eða sækja þau. Mjólkurbílstjórinn þurfti við marga að tala, og sums staðar beið hans mær við brúsapallinn. - Þótt Auden væri leiður á því, hve ferðalagið gekk grátlega seint, fylgdist hann af athygli með öllu háttalagi fólksins og hafði myndavélina jafnan á lofti. Einkum var hann hrifinn af þeim gamla og góða sveitasið að kyssast og faðmast í kveðju- skyni. Eftir að mjólkurbíllinn hafði þrætt alla refilstigu sína um völundarhús Hegraness og Viðvíkursveitar, renndum við loks í hlað á Hólum, og tók Kristján skólastjóri Karlsson þar á móti okkur, og var síðan dvalizt þar í góðu yfirlæti. Auden segir, að Hóladómkirkja sé ljót eins og flest guðshús mótmæl- enda, en eigi að síður varð honum tíðsetið í kirkjunni; hefir sennilega verið að yrkja. Skyrgerð var góð á Hólum, og varð mér einu sinni hált á því. Borð- aði ég þá heldur vel en vart af þessu kostaskyri og drakk tvo kaffibolla þar á ofan, en móðir mín hafði varað mig við því í bernsku að drekka kaffi ofan á skyr, ekki sízt á ferðalögum. En nú hvíslaði skollinn því einmitt að Auden að fara á hestbak eftir hádegismat. Líklega hafa Hólamenn séð, að mennirnir voru lítt hestamannslegir, því að klárarnir, sem skotið var undir okkur, voru bæði latir og hastir. A. fékk þann, sem skárri var, en sá, sem ég sat á, var mesti himnastrokkur. Þegar við komum nokkuð fram í Hjaltadalinn, fór skyrátið og kaffidrykkjan að segja til sín, því að ég fékk afleita kveisuverki. Urðu þeir svo sárir, að ég tolldi ekki á hestbaki, en velt- ist niður í þúfurnar illa haldinn, en Auden stóð yfir mér logandi hræddur. Vildi hann helzt ríða á bæi til að sækja hjálp, en ég fékk talið hann ofan af því. Eftir nokkra stund skreiddist ég aftur í hnakkinn, og riðum við löt- urhægt heim að Hólum. Dreif A. mig þegar niður í rúm, enda var ég þá kominn með hita. Var A. umhyggjusamur eins og bezti bróðir, útvegaði 92 á Jffiœyáá - Tímarit þýðenda nr. ii / 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.