Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 95

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 95
Ifylgd meö Auden mér aspirín-skammta. Svaf ég fast í tvo tíma og spratt þá upp alheill, og varð A. því feginn mjög. - Af þessum atburði stafar viðvörun hans í bók- inni um að drekka ekki kaffi ofan á skyr. Síðasta daginn, sem við vorum á Hólum, barst sú fregn, að Herbert Göring væri á leiðinni sunnan Kjöl og bæðist gistingar. Göring þessi var bróðir nazistaforingjans feita, Hermanns Görings, og var ráðuneytisstjóri í Berlín, eða eitthvað þess háttar. Kom hann ríðandi að sunnan með fjöl- mennu föruneyti. Séra Knútur Arngrímsson var túlkur hans og leiðsögu- maður, en auk hans munu hafa verið einn eða fleiri íslenzkir fylgdarmenn og hestasveinar. Auden varð ókvæða við þessa gestafrétt, en hann var mikill óvinur nazista eins og fyrr segir. Þótti honum það lítt bærileg tilhugsun að þurfa að gista heila nótt í sama húsi og slíkur maður. Valdi hann nazistum hin hæðilegustu orð og geisaði mjög. Var honum jafnvel ofarlega í huga að fara frá Hólum þá þegar, en átti ekki kost á neinni ferð. Lét hann nokkuð sefast, en ræddi mjög um það hvaða svívirðu hann gæti gert Göring. Er sumt af því, sem honum hugkvæmdist þá, engan veginn prenthæft í jafn- virðulegu tímariti sem þessu! Undir kvöldið reið Göring í hlað á Hólum með fríðu föruneyti, hófa- dyn og jóreyk; var för hans hin hermannligasta, og glampaði kvöldsólin á þýzku leðurstígvélin. Þýzkir slógu þegar tjöldum úti í túnjaðri og kom því ekki til þess, að Auden þyrfti að búa undir sama þaki og Göring. Morguninn eftir snæddu allir gestimir árbít inni í stofu. Voru þeir þar mestir virðingamenn, Auden og Göring, og sátu saman. Ræddust þeir við af miklu fjöri, bæði á ensku og þýzku, og sýndu hvor öðrum hæversku að hofmanna hætti og kvöddust síðan með hneigingum og hælasamslætti. Fór því svo giftusamlega, að heimsstyrjöldin hófst ekki á Hólum í Hjalta- dal þennan sólbjarta sumarmorgun. Eftir nýtt hringsól með mjólkurbílnum komum við aftur á Sauð- árkrók. Jónas læknir hafði þá útvegað okkur dvöl og gistingu á Ulfsstöð- um í Blönduhlíð að Jóhanns bónda. Höfðum við þar góða vist. Enn fórum við í reiðtúr og fengum að þessu sinni skagfirzka fjörhesta. Réð ég ekkert við minn og Auden enn síður við sinn, en ég átti fullt í fangi með að stýra gæðingnum og gat engar gætur gefið skáldinu. Munaði minnstu að fákarnir kæmu mannlausir í hlaðið á Miklabæ eins og hestur séra Odds forðum, en þar námum við staðar, og veit ég ekki, hvort A. datt af baki á leiðinni, en líklegt þykir mér það. Næsti áfangastaður var Akureyri, og leizt Auden stórum betur á þann stað en Reykjavík. Hann hreifst strax af þeim viðtökum, sem við fengum þar kvöldið, sem við komum þangað. Eg átti fjölda vina og skólasystkina á Akureyri og var strax umkringdur glaðværum og fagnandi hópi, er ég á - Hann gat ekki hætt að ríma 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.