Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 96

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 96
Ragnar Jóhannesson steig út úr vagninum á torginu. Segir Auden (í Letters from Iceland), að gaman væri að fá slíkar viðtökur „at Victoria or Paddington". Enda naut hann sjálfur góðs af. Mér hafði ekki tekizt að útvega gistingu á Akureyri, þrátt fyrir símtöl. Ferðamannastraumur var mikill nyrðra, og gistihúsin fleytifull. Nú vildi okkur það til, að ég hitti fljótlega skólabróður minn og vin, Jörund Pálsson frá Hrísey, sem stundaði um þessar mundir mynd- listarnám í Kaupmannahöfn á vetrum, en vann á Akureyri á sumrum. Hann bjó hjá systur sinni og mági, og vildi nú svo vel til, að húsráðendur voru fjarverandi, og bjó Jörundur einn í húsinu. Bauð hann okkur A. að búa þar, og þáðum við það með þökkum. Húsið var stórt og vel búið, og áttum við þarna góða og glaðværa vist. Kunningjar okkar Jörundar komu í heimsókn, og kunni Auden vel þeim félagsskap. Eitt kvöldið efndum við til drykkju til heiðurs við skáldið, ásamt einhverjum fleiri, sem ég man nú ekki lengur hverjir voru. Lék A. á als oddi og gerði veigunum ekki lakari skil en aðrir. Auden fór einn síns liðs til Mývatns og gisti þar eina nótt. Fátt kunni hann markvert að segja úr þeirri ferð, og Mývatn hreif hann ekki umfram aðra staði. Og „við komum að Goðafossi," segir hann, „ég fékk mér kaffl- sopa meðan Þjóðverjarnir fóru að dást að honum. Fossar eru merkilega líkir hver öðrum.“ Síðan hófst austurförin. Við Ljósavatn fórum við fram hjá karli og konu, sem voru að draga silunganet að landi. Minnti þessi starfi þeirra og umhverfið Auden á Nýja testamentið og veiðimennina við Galíleuvatn. Af þeim tók hann mynd, eina þá beztu, sem er í bók hans. Ekið var um Húsavík og Kelduhverfi. Fátt var farþega í áætlunarbif- reiðinni á þessum tíma sumars, og hagaði bílstjórinn ferðinni frjálslega og meira að vilja farþeganna en ella mundi verið hafa. Eg kom því t. d. til leiðar, að nokkuð var staldrað við fyrir neðan Ásbyrgi, svo að skáldið fengi tækifæri til að skoða þetta náttúruundur. Þuldi ég honum það, sem ég kunni úr Ásbyrgiskvæði Einars Ben: Sögn er, að eitt sinn um úthöf reið Óðinn og stefndi inn fjörðinn. Reiðskjótinn, Sleipnir, á röðulleið, renndi til stökks yfir hólmann, á skeið, spyrnti í hóf, svo að sprakk við jörðin, — sporaði byrgið í svörðinn. Enda minnist A. áÁsbyrgi í Letters (sjá kvæðið: „Ferð til Islands“: ... „fjöll eins og hófspor.“). En ekki gafst tími til að ganga alla leið inn í botn, svo að sá kostur vat 94 á . jOr/y/há - Tímarit þýðenda nr. ii / 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.