Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 20

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 20
1 2 3 4 4 · 2016 | Lifandi vísindi | Skordýrströll sem fer yfir hindranir Vitvélin Hector líkir eftir göngulagi förustafsins og á að hjálpa við björgunarstörf eftir hamfarir. Það eru 18 smágerðar aflvélar að störfum í fótum og liðamótum Vitprílarans Hectors, þegar hann fálm- ar sig áfram um torfæra urð. Skyndi- lega verður stór hindrun á vegi hans en hann lætur það ekki á sig fá, heldur færir einn fót örlítið til baka og lyftir honum svo upp. Það eru vísindamenn hjá Biele- feldháskóla í Þýskalandi sem hafa skapað Hector, vélknúið liðdýr á stærð við hund sem stjórnast af algoriþma sem líkir eftir göngulagi hins sexfætta förustafs. Sexfættar vitvélar færa yfir- leitt miðjufótinn á annarri hliðinni um leið og fram- og afturfót á hinni en hinir þrír fæturnir standa kyrrir á með- an. Þessi aðferð virkar vel á sléttlendi en dugar ekki þegar hindranir eru á leiðinni. Rétt eins og förustafurinn lagar Hector göngulag sitt að aðstæð- um. Hann stýrir bæði fótum og búk á grundvelli upplýsinga frá 18 skynjur- um í liðamótum fótanna. Hector er enn í þróun og í framtíð- inni á myndavél að aðstoða skynjar- ana við stjórnina. Vísindamennirnir gera sér vonir um að vitvélin geti gagnast við björgunarstörf eftir nátt- úruhamfarir. Skrokkurinn er úr koltrefjastyrktu plasti og er stýrt með fjórum litlum vélum. Tölvan, sem í raun er heili tækisins, er í frambúknum. Þrír liðir í hverjum fæti hafa hver sína vél. Sú efsta færir fótinn fram og aftur, miðvélin upp og niður en sú neðsta stýrir halla fótarins. Hector gengur af stað og kemst léttilega yfir smærri ójöfnur vegna sveigjanlegra liða. Einn fóturinn rekst í stærri hindrun, t.d. stigatröppu, á leið sinni. Skynjarar greina áreksturinn og tölvan flytur fótinn aftar og lyftir honum upp. Allur skrokkurinn lyftist í nógu mikla hæð til að Hector komist yfir hindrunina. Skynjarar vara við torfærum Lipur liðamót, 18 skynjarar og þróuð tölva gerir vitprílar- anum Hector mögulegt að fara um torfærur með sömu aðferð og förustafur. LÍKAMSLENGD: 93 sentimetrar. ÞYNGD: 13 kg. VIÐFANG: Tækið stöðvaðist vegna of vélræns göngulags. TILGANGUR: Vitvélar sem komast yfir hindranir eiga m.a. að gagnast við björgunarstörf eftir náttúruhamfarir. Skrokkurinn er úr koltrefja- styrktu plasti og stýrt af 4 litlum hreyfivélum. Tölvan, sem gegnir hlutverki heila, er inni í búknum. Fótaliðirnir þrír eru hver um sig búnir hreyfivél. Efsti liður- inn færir fótinn fram og aftur, miðliðurinn lyftir fætinum upp og niður, en sá neðsti stýrir halla neðsta hluta fótarins. UN IVERSITÄT BIELEFELD, CLAUS LUN AU FÖRUSTAFUR Innblástur: Print: stkp Status: 5 - InDesign Tem plate Layout: Red.sek: 19

x

Lifandi vísindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.