Lifandi vísindi - 04.04.2016, Qupperneq 24

Lifandi vísindi - 04.04.2016, Qupperneq 24
Kristian Filrup 4 · 2016 | Lifandi vísindi | Á Mars er að finna fljótandi vatn og þrátt fyrir að enn sé mjög fátt vitað um dropa reikistjörnunnar, þá eykur vitneskja þessi til muna möguleikann á að þar kunni að leynast líf. Líf getur þrifist í söltu vatni á Mars Á Mars er nánast enginn lofthjúp-ur, jarðfræðivirkni er þar löngu lokið og ryðrautt, sendið yfir-borðið er hrjóstrugt og rákótt af völdum hrapandi loftsteina. Frá- hrindandi umhverfi þar sem fljótandi vatn, og hugsanlega einnig líf, hafa eitt sinn þrifist en gera það svo sannarlega ekki lengur. Svona nokkurn veginn hefur almenn skoðun stjörnufræðinga verið um Mars á þeim tíma sem þeir hafa rannsakað reikistjörnuna sem mest. Úrfellingar í gjám og dældum gefa til kynna að vatn hafi eitt sinn fyrirfundist í miklu magni á reikistjörnunni en þar til fyrir skemmstu töldu vísindamenn að vatnið hefði horfið út í geiminn ellegar það bundist í risastór- um jökulhettunum á skautum reikistjörnunnar. Fyrir vikið vakti það talsverða undrun þegar nepalsk-bandaríski stjörnufræðineminn Lujendra Ojha árið 2011 kom auga á svartar rákir á yfirborði Mars sem stækkuðu og minnkuðu árstíðabundið. Fljótlega fékk hann grun um að endurteknu, svörtu hliðarrákirnar, sem á ensku nefnast rec- urring slope lineae, gætu átt rætur að rekja til fljótandi vatns. Með aðstoð athugana sem gerðar voru úr sendikannan- um Mars Reconnaissance Orbiter tókst haustið 2015 að staðfesta grunsemdir um að finna mætti fljótandi vatn á rauðu reikistjörnunni. Þetta eru jákvæð tíðindi, því án vatns væri borin von að nokkurt líf eða vísbendingar um líf væri að finna annars staðar en á jörðu, jafn- vel þótt vatnið væri í afar litlu magni. Það kem- ur verulega á óvart að vatn skuli fyrirfinnast á Mars, því aðstæður fyrir fljótandi vatn þar eru síður en svo hagstæðar. Hér á jörðinni eru bæði hitastig og loftþrýstingur mjög ákjósan- leg fyrir tilvist dropanna tæru. Hér bráðnar ís þegar hitastigið kemst upp í frost- mark og vatn sýður við 100° C en Fljótandi vatn er forsenda lífs Vatnið á Mars er að öllum líkindum ákaf- lega salt. Það þarf þó ekki að koma í veg fyrir að þar leynist líf. Vatn flýtur við hitastig jarðar og loftþrýsting hennar og er fært um að leysa upp flestöll næringarefni. Það á að sama skapi auðvelt með að flytja allt frá jónum upp í lífgjaf- arsameindir á borð við amínósýrur og sykurefni. Fyrir vikið leita vísindamenn að vatni þegar þeir reyna að komast að raun um hvort líf leynist á öðrum plánetum. Fundist hefur fljótandi vatn á Mars og það kann að tákna að þar leynist líf. Vatn gefur þó engar vonir um að þar fyrir- finnist stærri dýr, líkt og við þekkjum frá jörðu, því allt bendir til þess að saltstyrkur vatnsins sé mjög mikill. Vísindamennirnir eru engu að síður mjög vongóðir, þrátt fyrir salt vatnið, því örsmáar lífverur ættu að geta lifað í því. Saltstyrkurinn er afar breytilegur í höfum heimsins en er að meðal- tali kringum 3,5 prósent. Flest sædýr eru háð stöðugum salt- styrk og þola illa miklar breytingar á honum. Vísindamenn vita ekki fyrir víst hver saltstyrkurinn á Mars er en eigi vatn að geta komið fyrir í fljótandi formi þar verður styrkurinn að nema minnst 30 prósentum. Þetta útilokar stórar lífverur sem lifa í höfum jarðar, annars vegar vegna þess að vatnsmagnið nægir ekki til að mynda höf og hins vegar vegna þess að fjölfrumulífverur myndu lenda í basli með saltjafnvægið og þorna upp. Fiska myndi þyrsta á plánetunni rauðu 0-5 % Fiskar sem lifa í sjó en hrygna í ám geta bæði lif- að í söltu vatni og ósöltu en ekki í vatninu á Mars ÓSENNILEGT Vatnsmagnið e r of lítið til að fiskar geti lifað á Mars. SALT SHUTTERSTOCK Print: m ea Status: 750 - Sprog godkendt Layout:M EA Red.sek:BAV Á BAK VIÐ F RÉTTINA  23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Lifandi vísindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.