Lifandi vísindi - 04.04.2016, Side 61
?
| Lifandi vísindi | 4 · 2016
284.300 km2
Hve stór svæði þekja kórallar? Kóralrif eru um allan heim, á grunnsævi, miklu dýpi og hlýjum og köld-
um sjó. Heildarstærð kóralrifja er á við hálft Frakkland eða
Á Svalbarða myrkvaðist sólin alveg 20. mars 2015. Ljósið
er aðeins kóróna sólar (gufuhvolf).
Eru áhrifin af
sólmyrkva
mælanleg?
Í sólmyrkva skyggir tunglið á sólina og svæði á
jörðinni verður alveg án sólarljóss um stund. Hita-
stig lækkar vegna myrkvans, oft á bilinu 0,5-2 °C.
Loftþrýstingur lækkar líka mælanlega og það
hægir örlítið á vindi.
Orkutapið er mjög greinilegt. Í Þýskalandi
kemur stór hluti orkunnar frá sólþiljum og þar
þurfti að auka framleiðslu hefðbundinna orkuvera
talsvert til að bæta upp orkutap vegna deildar-
myrkvans 20. mars 2015. Einmitt þann dag varð
raforkuframleiðsla frá sólþiljum reyndar 70%
undir meðaltali.
SH
UT
TE
RS
TO
CK
EB
BE
R
AS
CH
FÁÐU SVAR Í
NÆSTA BLAÐI
Eru lík á reki úti í
geimnum?
Af hverju er naflinn
stundum flatur?
Hvernig virkar
LED-pera?
Þessi mynd sýnir yfirborð,
málað með nýrri gerð vatns-
hrindandi nanómálningar.
1 Vísindamenn hjá University
College í London hafa náð að
skapa nýja gerð málningar sem
bæði er vatnshrindandi og sjálf-
hreinsandi. Í málningunni eru tít-
andíoxíðagnir í nanóstærð.
2 Myndin sýnir yfirborð, þar sem
vísindamennirnir drógu ákveðið
línumynstur með málningunni en
helltu svo á þetta yfirborð blálituðu
vatni.
3 Vatnið skipti sér í litlar perlur,
líkt og örsmá stöðuvötn á milli
málningarstrikanna.
4 Vísindamennirnir prófuðu
málninguna á fatnaði, pappír, gleri
og stáli. Án tillits til þess hvert
efnið var, leitaði vatnið af máln-
ingunni og tók með sér hverja
minnstu örðu af óhreinindum.
HVAÐ ER ÞETTA?
YA
O
LU
/U
CL
Dropi af lituðu vatni
Vatnshrindandi nanómálning
60
SPURNINGAR OG SVÖR