Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Side 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201018
Fríða Björnsdóttir, fridabjornsdottir@gmail.com
JAFNÖLDRUR FÉLAGSINS SÍNS
Þrjár hjúkrunarkonur fögnuðu 90 ára afmæli sínu á afmælisári Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, eða Hjúkrunarfélags Íslands eins og félagið hét þegar þær
gengu í það að afloknu námi fyrir meira en hálfri öld. Yngst þessara þriggja er
Sigrún Hermannsdóttir frá Seyðisfirði sem átti afmæli í desemberlok. Síðan kemur
Jónína Stefanía Bjarnadóttir frá Norðfirði, hálfum mánuði eldri, og loks Arngrunnur
Sigríður Ársælsdóttir úr Reykjavík sem er fædd í október. Hjúkrunarkonurnar
lýstu námi og starfi og því hvernig þær fóru allar til framhaldsnáms til útlanda.
Arngunnur útskrifaðist í apríl 1943, Jónína haustið 1946 og Sigrún í maí 1945.
Sigrún Hermannsdóttir
NÆTURVAKTIRNAR
Í KAUPMANNAHÖFN
ALGJÖR LÚXUS
Þegar Sigrún Hermannsdóttir var lítil
stúlka austur á Seyðisfirði vildi hún helst
verða læknir. Hún var elst í hópi sex
systkina. Tvö systkini hennar dóu ung og
tók hún það óskaplega nærri sér og vakti
það án efa löngun hennar til að verða að
liði. Sigrún fór þó ekki í læknisfræðina
heldur snéri sér að hjúkrun.
„Kannski var það mest af eigingirni að
ég valdi hjúkrun. Ég vildi vera sjálfstæð
og geta unnið fyrir mér en ég hafði
afgreitt í Kaupfélaginu á Seyðisfirði áður
en ég fór í námið. Reyndar voru tvær
hjúkrunarkonur á Seyðisfirði sem ég leit
upp til. Önnur var Helga Jóhannsdóttir
sem hafði lært úti í Kanada sem mér
þótti afar ævintýralegt. Hin var Gróa
Guðjónsdóttir, hálfsystir móður minnar,
sem fór árið 1933 til London og vann þar
við hjúkrun,“ segir Sigrún.
Ellefu stúlkur byrjuðu í forskólanum með
Sigrúnu í febrúar 1942 en aðeins fimm
þeirra útskrifuðust. Á meðan stúlkurnar
Sigrún Hermannsdóttir heldur á leirstyttu, Hjúkrunarkonunni, eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Þessar styttur voru
gerðar árið 1944 á 25 ára afmæli Hjúkrunarfélags Íslands og gafst hjúkrunarkonum tækifæri til að kaupa þær.
Mynd til vinstri:
Jónína Stefanía Bjarnadóttir.Mynd fyrir miðju:
Arngunnur Sigríður Ársælsdóttir.Mynd til hægri: