Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201020 Jónína með sjúklingi sínum, líklegast á Skotlandsárunum. Álagið minna í Danmörku Þegar náminu lauk vorið 1945 fór Sigrún aftur austur á Seyðisfjörð og gifti sig. Hún vann af og til á Landspítalanum eftir það en fór svo með manni sínum, Bjarna Einarssyni íslenskufræðingi, til Danmerkur og Noregs. Þar segist hún hafa unnið á spítölum og farið í sérfræðinám í blóðrannsóknum og ekki hafi hún átt í erfiðleikum með tungumálið enda höfðu kennslubækur nemanna verið á dönsku. „Það var mikill munur að vinna á sjúkrahúsi í Danmörku, álagið var minna, sjúklingarnir færri sem við áttum að sjá um og starfið allt léttara. Næturvaktirnar á Frederiksberg hospital í Kaupmannahöfn voru algjör lúxus. Okkur voru ekki ætluð nein verk nema að svara bjöllunum og okkar beið þægilegur stóll með teppi sem við máttum sitja í milli þess sem við sinntum sjúklingunum.“ Eftir heimkomuna vann Sigrún síðan á ýmsum spítölum. Sigrún minnist útskriftardagsins 1945 sem bar upp á friðardaginn. Hjúkrunarfélagið bauð nemunum í kaffi á Hótel Borg og Sigríður Eiríksdóttir formaður talaði til þeirra hvatningarorð. Að því loknu hlupu þær af stað upp á Landspítala glaðar og hressar eins og ungum stúlkum var eðlilegt. En þær voru ekki komnar langt þegar þær tók að svíða í augun. Táragasi hafði verið dreift yfir þá sem voru þarna á ferð til að róa fólkið því einhverjum fannst sem kátína fólksins væri að fara úr böndunum, gleðin yfir stríðslokunum og í þeirra tilfelli námslokunum í hjúkrunarskólanum. Jónína Stefanía Bjarnadóttir GAF GÓÐ RÁÐ JAFNT Á KVÖLDIN SEM UM HELGAR Þær voru 16 stúlkurnar í hollinu hennar Jónínu Stefaníu Bjarnadóttur sem luku hjúkrunarnámi haustið 1946. Reyndar var siðferðiskennd þeirra sem réðu á þessum tíma önnur en nú gerist því einni stúlku var gert að fresta útskriftinni þar sem hún varð ófrísk og farið var að sjást á henni þegar að útskrift kom. Það mátti ekki! Jónína segir að stúlkan hafi alltaf verið talin ein af hópnum þótt útskriftin tefðist þar til barnið var fætt. Jónína kom úr stórum systkinahópi, 7 systur og 1 bróðir, og var eina systirin sem fór til náms. Hún gerðist vinnukona í Reykjavík hjá Ormssonfjölskyldunni, stofnendum fyrirtækisins Bræðurnir Ormsson, til þess að geta síðan farið í nám. Í hjúkrun fór Jónína vegna þess meðal annars að það var eina námið þar sem hún fékk smákaup á námstímanum. „Við fengum 100 kr. á mánuði, ef ég man rétt, en líklega hefur það verið undir lokin,“ segir Jónína. „Það var varla fyrir einu pari af skóm.“ Húsnæði og vinnuföt fengu nemarnir líka, „og það munaði voða miklu.“ Nemahópurinn hélt ævinlega saman, leið alltaf vel og leiddist aldrei þar sem stúlkurnar bjuggu uppi á efstu hæð Landspítalans, þrjár saman í herbergi. „Mér fannst námið aldrei erfitt en vinnan var dálítið mikil. Það voru allir almennilegir við okkur og sögðu okkur vel til.“ Stúlkunum þótti heldur ekki tiltökumál að vinnutíminn væri 10 tímar á dag enda unnu allir mikið í þá daga. Nemaárið úti á landi var Jónína á Ísafirði og fannst skrýtið hvað mikið var þar af færeyskum starfsmönnum. Hún átti þó ekki í miklum erfiðleikum með að tala við þá, líklega vegna þess að í Neskaupstað hafði verið mikið af færeyskum fjölskyldum og börnin léku sér gjarnan saman. Framhaldsnám í fjórum löndum Í framhaldsnám fór Jónína til Surrey í Englandi og til Edinborgar og lenti ekki í neinum erfiðleikum með tungumálið. Árið 1951 fór hún svo til Finnlands og neitar því ekki að hún hafi kviðið svolítið fyrir ferðinni. „Ég fór að vinna á sjúkrahúsi þar sem yfirlæknirinn var nýtekinn við og hann sagði einfaldlega: „Hér tölum við bara finnsku og ekkert nema finnsku.“ Ég var snemma sett ein á vakt seinnipart dags, allir töluðu finnsku og ég var alveg ómöguleg. Yngri mennirnir skildu hvernig mér leið en yfirlæknirinn var alveg ákveðinn hvað þetta varðaði. Manneskjan yrði bara að fara ef hún talaði ekki finnsku. Þetta bjargaðist svo smátt og smátt.“ Jónína fór síðan til Svíþjóðar og hélt áfram námi sínu í skurðstofuhjúkrun og þar var henni mjög vel tekið. Árið 1952 varð Jónína fyrsta yfir hjúkrunar­ konan á sjúkrahúsinu á Akranesi. Þar kynntist hún manninum sínum, Gunnari Sigurðssyni, en þau fluttust til Reykjavíkur árið 1956. Hún hóf þá störf við Heilsuverndarstöðina, meðal annars við ungbarnaeftirlit. Dætur Jónínu, Steinunn, lyfjafræðingur í Kaupmannahöfn, og Guðrún, læknir í Hafnarfirði, minnast þess þegar móðir þeirra fór út um allan bæ með reisluna sína til að vigta ungbörnin. Þær muna líka vel að hún vann myrkranna á milli enda orðin einstæð móðir árið 1966 eftir að maður hennar lést. „Hún var stöðugt til taks og ungir foreldrar, áhyggjufullir út af brjóstagjöf eða einhverju öðru, hringdu oft heim. Mömmu fannst alltaf jafnsjálfsagt að svara í símann bæði á kvöldin og um helgar og gefa góð ráð,“ segja dæturnar. Jónína vann síðar lengi á heilsugæslunni á Seltjarnarnesi en nú eyðir hún ævikvöldinu á Hrafnistu í Reykjavík þar sem blaðamaður hitti hana og dætur hennar og spjallaði við hana um liðinn tíma.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.