Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 23
ræða. Frá stofnun sjóðanna hafa safnast
þar miklar eignir með innborgunum
launagreiðenda vegna starfsmanna, að
verulegum hluta vegna hjúkrunarfræðinga.
Eignamyndunin verður til við það að
útborganir úr sjóðunum eru minni en
innborganir og ávöxtun. Öll rök standa
til þess að FÍH eigi hlutdeild í þessari
eignamyndun þrátt fyrir úrsögn úr BHM.
Stjórnin telur afstöðu BHM í þessu máli
ekki standast lög og auk þess sýna mikla
ósanngirni gagnvart FÍH. FÍH mun, fyrir
hönd félagsmanna allra, standa vörð um
þessi réttindi.
Áhrif úrsagnar FÍH úr BHM á
félagsmenn FÍH
Eins og að framan greinir rekur FÍH
sjálf stæðan starfs menntunarsjóð en
launa greiðendur greiða 0,22% af dag
vinnu launum hjúkrunarfræðinga í þann
sjóð. FÍH rekur einnig sjálfstæðan
orlofs sjóð sem launagreiðendur greiða
í sem nemur 0,25% af heildarlaunum
hjúkrunarfræðinga. Þá greiða launa
greiðendur 1,5% af föstum dagvinnu
launum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð
en FÍH var eina félagið í BHM sem
afsalaði sér ekki greiðslum í vísindasjóð
í kjarasamningum 2008. Engin breyting
verður á þessum sjóðum vegna úr sagnar
FÍH úr BHM. Til að tryggja að hjúkrunar
fræðingar geti áfram notið sambærilegra
styrkja og þeir hafa getað sótt í styrktar
og sjúkrasjóði BHM á meðan unnið er að
lausn þessa ágreinings, mun FÍH koma á
fót bráðabirgðaúrræði, sérstökum sjóði
innan FÍH sem tryggir hjúkrunarfræðingum
sambærilega styrki og stjórn FÍH telur þá
eiga rétt á úr sjóðum BHM.
Í nóvember sl. samdi FÍH við lögmann
um þá ráðgjöf sem áður var sótt til
BHM. Samningurinn tryggir félaginu og
félagsmönnum meiri þjónustu en hægt
var að gera kröfur til hjá BHM. Sá hluti
félagsgjalda félagsmanna FÍH sem áður
rann til BHM, um 14 milljónir króna
árlega, mun hér eftir nýtast í beina
þjónustu við þá frá félaginu. Þó reikna
megi með að kostnaður vegna uppgjörs
við BHM verði verulegur á þessu ári mun
stjórn FÍH þó leitast við að tryggja að
starfsemi félagsins og reikningar sýni að
þeir fjármunir, sem áður fóru í starfsemi
BHM, leiði til aukinnar þjónustu í
samræmi við markmið með nýju skipulagi
félagsins. Þá er einnig rétt að ítreka að
talsverður tími formanns og sviðstjóra
kjara og réttindasviðs fór í störf innan
BHM, störf sem að sjálfsögðu nýttust
hjúkrunarfræðingum að einhverju leyti.
Sá tími mun nú nýtast í störf innan FÍH og
í þjónustu við félagsmenn.
Að lokum er rétt að árétta að stjórn og
starfsmenn FÍH munu fyrst og síðast
gæta réttinda félagsmanna í FÍH í málum
er tengjast úrsögn FÍH úr BHM.
Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.