Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 35 Framhaldsnám á meistarastigi í hjúkrun á Íslandi er ekki til í öllum sérgreinum og hefur eflaust með framboð og eftirspurn að gera. Erfitt er að bjóða upp á nám innan allra sviða hjúkrunar og undirsviða en þó mætti alveg endurskipuleggja meistaranám eða að minnsta kosti bjóða upp á fleiri leiðir til að mennta hjúkrunarfræðinga með áherslu á klíníkina en ekki bara bókina. Nýburaflutningar er afar sérhæft svið innan hjúkrunar og því erfitt að fullnægja þeim þörfum hér á landi að sérmennta fólk til þessara starfa. Þó væri hægt að fara þá leið sem farin er erlendis, að skipuleggja sérnámskeið fyrir þá hjúkrunarfræðinga sem vinna við þetta. Það er sérstaklega mikilvægt þar sem hér á landi eru einungis tvær stofnanir sem sinna veikum nýburum. Einungis er ein sérhæfð vökudeild á Íslandi, á Barnaspítala Hringsins, enda er það vel skiljanlegt miðað við fólksfjöldann og fjölda fæðinga, og síðan er vökustofa innan barnadeildar FSA sem tekur við nýburum og fyrirburum fæddum eftir 34. viku meðgöngu. Sama skipulag, að hafa eina sérhæfða vökudeild og síðan minni einingar sem á ensku eru kallaðar „special care baby units“, er víða erlendis og hefur þetta reynst vel bæði hvað varðar sérhæfingu starfsfólks og útbúnað. Þetta gerir það að verkum að ávallt verður þörf fyrir flutninga á veikum nýburum milli stofnana hér á Íslandi og einnig héðan til sjúkrahúsa erlendis til enn sérhæfðari lækninga, eins og hjartaaðgerða. Hér á landi er þó, eins og áður sagði, engin sérmenntun fyrir hjúkrunarfræðinga sem sinna þessum störfum. Aðallega er það reynsla, færni og áhugi sem fær þá til að vinna við þessi verkefni. Það er þó þannig að það er afar sérhæft að vinna við veikan nýbura í hitakassa í flugvél og ýmislegt sem hafa ber í huga. Að auki er mjög erfitt að viðhalda færni sinni þar sem flutningarnir eru ekki, sem betur fer, á hverjum degi. En nýburaflutningar eru afar gefandi fyrir þá sem vinna við nýburahjúkrun og hafa áhuga á krefjandi verkefnum. Ég var á árunum 2005­2006 í meistara námi við Nottinghamháskóla í Bretlandi með áherslu á nýburahjúkrun og var í verklegu námi í 6 mánuði á nýburagjörgæslu á Queens Medical Centre í Nottingham. Þar er starfandi sérhæft nýburaflutningsteymi sem er afar framarlega á sínu sviði og var ég svo heppin að fá að starfa með því. Ákveðnir hjúkrunarfræðingar eru í teyminu og eru á svokölluðum flutningsvöktum í vinnunni. Þetta er afar vel skipulagt. Hjúkrunarfræðingarnir þurfa að fara á námskeið í nýburaflutningum þar sem farið er yfir ýmsa þætti sem hafa ber í huga við flutninga, allt frá samskiptum milli deilda til flutninganna sjálfra. Síðan þurfa hjúkrunarfræðingarnir að fara í flutninga með öðrum og standast síðan próf í að flytja barn í öndunarvél með lærimeistarann með sér. Þetta flutningsteymi er nú að verða opinberlega viðurkennt sem sérhæft teymi en ekki bara hluti af þeim tveimur nýburagjörgæsludeildum sem það er rekið út frá. Við á Íslandi gætum auðveldlega tileinkað okkur að halda námskeið og sérmennta hjúkrunarfræðinga til nýburaflutninga í samstarfi við erlend teymi og jafnvel með því að fá að taka þátt í þeirra námskeiðum. Því miður er staðan sú á FSA núna að einungis unglæknar „fá“ að fara með í sjúkraflug með veika nýbura. Þetta er auðvitað ekki til fyrirmyndar né eftirbreytni. Myndi það þykja í lagi að hafa sjúkling á gjörgæslu án þess að hafa hjúkrunarfræðing til að sinna honum? Nei, það þætti sem betur fer ekki tilhlýðilegt. Án þess að ætla að vanmeta þekkingu og færni unglækna ,sem starfa við FSA, þá er það mín skoðun að með barnalækni í þessa flutninga ætti að fara hjúkrunarfræðingur sem er fær í að sinna veikum nýburum. Sérhæfð námskeið í nýburaflutningum myndu auka þá þekkingu og færni sem til þarf og gera hjúkrunarfræðingana enn færari til að sinna þessu starfi. Þetta er alls ekki tæmandi umræða en ætlað að vekja fólk til umhugsunar um sérhæfð hjúkrunarstörf og þá menntun sem þarf til slíkra starfa. Ég skora á Eydísi Birtu Jónsdóttur að skrifa næsta þankastrik. NÝBURAFLUTNINGAR Menntun hjúkrunarfræðinga á Íslandi er afar góð og erum við eftirsóttir starfskraftar erlendis. Það er þó þannig að við höfum mjög almenna menntun í allri hjúkrun og sérhæfing byrjar ekki fyrr en eftir útskrift. ÞANKASTRIK Elma Rún Ingvarsdóttir, elmarun@gmail.com Elma Rún Ingvarsdóttir er hjúkrunarfræðingur á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri og með meistaragráðu í nýburagjörgæslu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.