Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Síða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 201036
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til
breytinga á lögum um heilbrigðis
þjónustu. Frum varpið er afar stutt
og athugasemdirnar einnig mjög
fátæklegar. En afleiðingarnir fyrir hjúkrun
geta orðið mjög alvarlegar. Lagt er
til að taka út ákvæði um yfirlækna,
yfirhjúkrunarfræðinga og deildarstjóra
hjúkrunar. Engin fagleg rök eru sett fram
heldur er talað um aukinn sveigjanleika
og hugsanlega hagræðingu. Breytingin
gefur því yfirstjórn á heilbrigðisstofnunum
möguleika að velja hvort þeir vilja hafa
hjúkrunarstjórnendur eða ekki. Gert er
ráð fyrir að frumvarpið verði að lögum
á vorþingi. Hér á eftir fylgir í heild sinni
umsögn stjórnar FÍH. Millifyrirsagnir eru
blaðsins.
Dreifstýring og staða deildarstjóra
Í athugasemdum við lagafrumvarpið segir
meðal annars: „Skv. 1. mgr. 10. gr.
laganna bera framkvæmdastjóri hjúkrunar
og framkvæmdastjóri lækninga faglega
ábyrgð á þjónustu stofnunar gagnvart
forstjóra. Ekki verður séð að nauðsyn
beri til að kveða nánar á um innra
skipulag heilbrigðisstofnana í lögum.“
Stjórn FÍH heldur fram hinu gagnstæða
og bendir á að undanfarin ár hefur fjöldi
heilbrigðisstofnana verið sameinaður og
starfsvæði þeirra verið stækkað. Um
nýliðin áramót voru átta heilbrigðis
stofnanir á Vesturlandi sameinaðar í eina
stofnun, Heilbrigðistofnun Vesturlands.
Starfssvæði þeirrar stofnunar nær
frá Akranesi norður til Hvammstanga
og Hólmavíkur. Heilbrigðisstofnun
Austurlands nær yfir svæðið frá Vopnafirði
suður til Djúpavogs og Heilbrigðisstofnun
BREYTINGAR Á LÖGUM UM HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU
MUNU VEIKJA STÖÐU HJÚKRUNARFRÆÐINGA OG ÓGNA
ÖRYGGI SJÚKLINGA
Frá stjórn FÍH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sendi í janúar sl. Alþingi umsögn um
frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu. Stjórn FÍH leggst alfarið gegn þeim
breytingum á lögum um heilbrigðisþjónustu sem í frumvarpinu felast og hvetur
heilbrigðisnefnd Alþingis til að falla frá þeim.
Suðurlands þjónar íbúum allt vestur af
Höfn í Hornafirði til Selfoss. Með stærra
starfsvæði eykst þörfin fyrir dreifstýringu.
Heilbrigðisþjónusta er í eðli sínu mjög
breytileg, bráðaaðstæður skapast og
þjónustuþörf skjólstæðinganna getur
breyst skyndilega. Stjórnendur í hjúkrun
þurfa að forgangsraða verkefnum frá degi
til dags og jafnvel frá einni stundu til
annarrar til að tryggja gæði þjónustunnar
og öryggi sjúklinga. Því fjær vettvangi, sem
stjórnandinn er, því erfiðari og ómarkvissari
verður stjórnunin og þjónustan. Stjórn
FÍH telur því mikilvægara en nokkru
sinni að kveðið sé á um innra skipulag
heilbrigðisstofnana í lögum þannig að
fagleg ábyrgð deildarstjóra hjúkrunar
eða annars skilgreinds hjúkrunar
stjórnanda á einstökum starfsstöðvum
stórra heilbrigðisstofnana sé skýr, með
hagsmuni skjólstæðinga þjónustunnar að
leiðarljósi.
Skýr lagaákvæði um faglega ábyrgð
deildarstjóra í hjúkrun á sjúkrahúsum eru
nauðsynleg í ljósi stærðar þeirra stofnana,
ekki hvað síst Landspítala (LSH).
Stjórnskipulagi LSH hefur nú verið breytt á
þann veg að framkvæmdastjórar hafa verið
settir yfir stórar og mannfrekar einingar þar
sem veitt er gríðarlega flókin og fjölbreytt
þjónusta. Aðeins tveir framkvæmdastjórar
sviða eru hjúkrunarfræðingar.
Framkvæmdastjóri hjúkrunar á LSH
ber vissulega faglega ábyrgð á hjúkrun
en hefur hvorki fjárhagslega ábyrgð
né mannaforráð. Á þeim sviðum LSH,
þar sem framkvæmdastjóri er ekki
hjúkrunarfræðingur, gætu komið upp þær
aðstæður, verði stöður deildarstjóra felldar
brott úr stjórnskipulagi stofnunarinnar,
að enginn hjúkrunarstjórnandi annar
en framkvæmdastjóri hjúkrunar verði
starfandi á viðkomandi sviði. Má þar
nefna lyflækningasvið en undir það svið
falla m.a. allar lyflækningadeildir spítalans,
krabbameinsdeildir, endurhæfingardeildir
og öldrunardeildir. Fjöldi skjólstæðinga
sviðsins skiptir hundruðum á hverjum
degi, sömuleiðis fjöldi hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða. Deildir sviðsins þjóna
bráðveikum, fólki með langvinna sjúkdóma
og deyjandi fólki. Að mati stjórnar
FÍH er algjörlega óhugsandi að reka
viðunandi hjúkrunarþjónustu á sviðinu
án hjúkrunarstjórnenda/deildarstjóra á
einstökum deildum.
Yfirhjúkrunarfræðingar á
heilsugæslustöðvum
Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að fella
brott ákvæði um yfirhjúkrunarfræðinga
heilsugæslustöðva. Á sameinuðum
heilbrigðisstofnunum, eins og lýst
var fyrr í umsögn þessari, eru reknar
heilsugæslustöðvar sem miklar fjarlægðir
eru á milli. Nefna má heilsugæsluna á
Hólmavík og heilsugæsluna í Ólafsvík
sem dæmi um heilsugæslustöðvar
innan sömu heilbrigðisstofnunarinnar.
Að mati stjórnar FÍH er óhugsandi
að skipuleggja og veita örugga
hjúkrunarþjónustu á þessum útstöðvum
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
án annarra hjúkrunarstjórnenda en
framkvæmdastjóra hjúkrunar sem hefur
aðsetur á Akranesi.
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH)
tilheyra nú 15 heilsugæslustöðvar í sex
sveitarfélögum. Um 2/3 hlutar þjóðarinnar