Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 41
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 37
sækja sína grunnþjónustu til þessara stöðva þar sem
ófæddir jafnt sem aldraðir fá hjúkrunarþjónustu. Margþætt
þjónusta er veitt á heilsugæslustöðvunum, í grunnskólum og
á heimilum fólks. Verði frumvarpið að lögum og velji forstjóri
HH að leggja niður stöður yfirhjúkrunarfræðinga einstakra
heilsugæslustöðva verður framkvæmastjóri hjúkrunar
eini stjórnandinn sem getur skipulagt og stýrt daglegri
hjúkrunarþjónustu heilsugæslunnar á þessum 15 stöðvum.
Stjórn FÍH telur slíkt óhugsandi og að það myndi kippa
grundvellinum undan heilsugæslunni, þessari veigamiklu
grunnþjónustu sem stjórnvöld leggja áherslu á að styrkist.
Að lokum
Í umsögn fjárlagaskrifstofu Fjármála ráðuneytisins kemur
fram að frumvarpinu sé „ætlað að auka möguleika á
að einfalda skipulag og ná fram aukinni hagræðingu og
sveigjanleika í starfsemi heilbrigðisstofnana.“ Frumvarp til
laga um heilbrigðisþjónustu er því í þessu tilviki augljóslega
lagt fram af fjárhagslegum ástæðum en ekki faglegum. Stjórn
FÍH mótmælir því að fagleg rök víki þannig fyrir fjárhagslegum.
Þá vill stjórn FÍH vekja athygli á ákvæðum 33. greinar tilskipunar
Evrópu þingsins og ráðsins 2005/36/EC um viður kenningu
á faglegri hæfni. Þar er kveðið á um fullt stjórnunarlegt
forræði hjúkrunarfræðinga yfir hjúkrunarþjónustu, að
hjúkrunarfræðingar verði að bera fulla ábyrgð á skipulagi og
stjórnun þjónustu við skjólstæðinga hjúkrunar.
Stjórn FÍH hvetur heilbrigðisnefnd Alþingis til að falla frá þeim
breytingum sem lagðar eru til í umræddu frumvarpi.
Eru deildarstjórar og yfirhjúkrunarfræðingar óþarfir á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum?
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar
fræðinga verður haldinn 27. maí
næstkomandi. Þá verður kosið í stjórn
og nefndir samkvæmt lögum félagsins.
Í ár verða sjö fulltrúar fagdeilda og
þrír fulltrúar sem hvorki eru fulltrúar
fagdeilda né svæðisdeilda, kosnir til
tveggja ára stjórnarsetu. Einnig verða
kosnir þrír fulltrúar til tveggja ára setu
í ritnefnd.
Kjörnefnd auglýsir því eftir:
framboðum til þriggja fulltrúa í stjórn,
framboðum til þriggja fulltrúa í ritnefnd.
Framboð þurfa að berast kjörnefnd á skrifstofu Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir 12. apríl næstkomandi.
Lög félagsins eru birt á heimasíðu félagsins, www.hjukrun.is.
Upplýsingar veitir kjörnefnd:
Guðrún Jónasdóttir, gudrujo@landspitali.is, s. 8629693,
Hildur Rakel Jóhannsdóttir, hildurjo@gmail.com, s. 6997364,
Ragna Dóra Rúnarsdóttir, ragnadr@landspitali.is, s. 8666234,
Sigríður Lóa Rúnarsdóttir, svalt@simnet.is, s. 8612352.
Atkvæði talin á aðalfundinum 2009.
Framboð í stjórn og nefndir Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga