Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Blaðsíða 47
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 43
Umsóknarfrestur fyrir meistara- og doktorsnám er 15. apríl
Hjúkrunarfræðideild
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ www.hjukrun.hi.is
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
H
SK
4
77
28
1
0/
09
fjögurra ára háskólamenntun,“ segir
Guðrún Úlfhildur. Þar sem vantaði
háskólakennara fóru margar í hópnum
mjög fljótlega að kenna. Upp kom þá
sú sérkennilega staða að um tíma voru
nemar í Nýja hjúkrunarskólanum með
hærri laun en sumir kennarar í skólanum.
Í Nýja hjúkrunarskólanum voru kennd
framhaldsnámskeið í hjúkrun og margir
nemar því með langan starfsaldur en
háskólamenntuðu kennararnir voru
reynslulitlir og því á byrjunarlaunum.
Fljótlega eftir fundinn í Hjúkrunarfélaginu
var farið að undirbúa stofnun nýs félags.
Það varð að veruleika í desember 1978.
Á stofnfundinum gekk reyndar erfiðlega
að ákveða nafn félagsins. Boða þurfti til
framhaldsstofnfundar og náðist samstaða
og sérstöðu. Þeim var safnað saman í
Útgarð og gerður var kjarasamningur við
ríkið. Margir vilja meina að þetta hafi ekki
verið eiginlegar samningaviðræður heldur
frekar ákvörðun ríkisins. Meðal annars
var ákveðið að hjúkrunarfræðingar skyldu
ekki fá full laun fyrr en níu mánuðum
eftir útskrift. Þetta hafði aldrei gerst með
háskólamenntað fólk fyrr.
„Það voru vonbrigði að ekki tókst að
hækka launin mjög mikið en þau urðu
samt sambærileg við laun annarra með
nema einn fundarmaður var á móti. Kosið
var svo í kjaranefnd og fræðslunefnd.
Daginn eftir stofnfund hittist hin nýkjörna
stjórn heima hjá Guðnýju Önnu. Jóhanna
tók að sér að vera formaður en allir skyldu
vinna saman og koma fram fyrir hönd
félagsins.
Eitt fyrsta verk félagsins var að undirbúa
ráðstefnu um heilsuvernd fjölskyldunnar en
sú ráðstefna var haldin í september 1979.
Þar mættu um hundrað manns og því
greinilegt að meirihlutinn var ekki í félaginu.
Það var heldur ekki ástæða til að búa til
hindranir því hjúkrunarfræðingar vildu ræða
málin án tillits til félagsskírteinis. Þó að
FHH hefði sína eigin stefnu í kjaramálum
tók félagið strax upp samvinnu við
Hjúkrunarfélag Íslands í menntunarmálum.
Félögin tvö skrifuðu til dæmis undir
sameiginlega ályktun um menntunarmál
snemma árs 1979 í tilefni af frumvarpi til
laga þar sem setja átti hjúkrunarmenntun
í framhaldsskóla. Formleg samstarfsnefnd
félaganna tveggja var skipuð 1984 en
síðan áttu eftir að líða 10 ár þangað til
félögin sameinuðust.
Fyrsta fréttabréf félagsins var gefið út í
febrúar 1983. Draumurinn var að geta
gefið út alvöru ritrýnt tímarit en Tímarit
FHH kom fyrst út 1984. Í því voru erindi
frá ráðstefnunni um hjúkrunarfræðslu í
nóvember 1983. Greinar í tímaritinu voru oft
upphaflega ráðstefnuerindi og 1988 voru
til dæmis birt erindi frá ráðstefnunni um
hugmyndafræði hjúkrunar sem var haldin
á Hótel Sögu 1987. Tímaritið var gefið út
árin 19841992, samtals 9 árgangar, en
einungis kom út eitt tölublað á ári.
Félagsmenn voru ekki margir fyrstu árin.
Á stofnfundinn 2. desember 1978 mættu
18 manns. Þær voru 14 sem útskrifuðust
1977 og við bættust 23 í desember 1978
en 17 þeirra skráðu sig í félagið. Það var
því fámennur hópur ungra og reynslulítilla
hjúkrunarfræðinga sem lögðust í það mikla
verkefni að búa til öflugt stéttarfélag. Þegar
félagið sameinaðist Hjúkrunarfélagi Íslands
1994 voru félagsmenn hins vegar orðnir
yfir 600.
Ungu hjúkrunarfræðingarnir úr fyrstu stjórn
eru nú allir komnir með langa starfsreynslu
og hafa dreifst á ýmsa vinnustaði. Þeir
hafa augljóslega smitað hver annan því
allir fóru þeir fyrst í geðhjúkrun. Ingibjörg
Einarsdóttir hefur unnið á ýmsum deildum
og er nú deildarstjóri á geðsviði Landspítala
eins og Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir.
Jóna Siggeirsdóttir var einnig um tíma
deildarstjóri á geðsviði Landspítalans en er
nú hjúkrunarfræðingur í Sóltúni. Jóhanna
Bernharðsdóttir hefur kennt geðhjúkrun
í mörg ár og er nú lektor í geðhjúkrun
við HÍ. Guðný Anna Arnþórsdóttir var
einnig í mörg ár lektor í geðhjúkrun
við HÍ og samhliða því sviðsstjóri
geðsviðs á Borgarspítalanum. Hún er
nú starfsmannastjóri á svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra í Reykjavík.
Fyrsta stjórn Félags háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga. Standandi frá vinstri eru Jóna
Siggeirsdóttir, Ingibjörg Einarsdóttir og Guðrún
Úlfhildur Grímsdóttir. Sitjandi frá vinstri eru Jóhanna
Bernharðsdóttir og Guðný Anna Arnþórsdóttir.