Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2010, Page 51
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 86. árg. 2010 47
Rannsóknir og nýsköpun skipa háan sess hjá EFN. Það er
eitt af markmiðum EFN að skoða og bregðast við málum
sem tengjast hjúkrunarstéttinni og heilsu Evrópubúa og hafa
hverju sinni tiltækar uppfærðar upplýsingar um stéttina og
málefni hjúkrunar í Evrópu allri. Skoðanir, stefnuyfirlýsingar
og umsagnir EFN gagnvart stofnunum innan ESB eru að
jafnaði byggðar á og orðaðar í samræmi við niðurstöður
rannsókna um viðkomandi efni.
EFN er virkur þátttakandi í verkefnum um heilbrigðismál og
heilbrigðisstarfsfólk. Samtökin taka um þessar mundir þátt í
nokkrum verkefnum.
Verkefni EFN um lýðheilsu
Með verkefninu hefur EFN samið leið beiningar um innihald
kennsluskrár sí mennt unar fyrir hjúkrunarfræðinga í Evrópu á
sviði lýðheilsu. Verkefnið var unnið með það fyrir augum að
allt heilbrigðisstarfsfólk og þar með taldir hjúkrunarfræðingar
verði að vera undirbúið fyrir verkefni framtíðarinnar og hafa
kunnáttu og getu til að vinna að lýðheilsu og forvörnum gegn
sjúkdómum. Verkefnið var kostað af framkvæmdastjórn ESB
og félög hjúkrunarfræðinga um alla Evrópu voru þátttakendur
í því.
Spár um fjölda hjúkrunarfræðinga: Skipu lag mannafla
í hjúkrun
Markmið þessa þriggja ára verkefnis er að taka á þeim
hjúkrunarfræðingaskorti sem spáð er á næstu árum og
bæta skipulag mannafla í hjúkrun í Evrópu, í fyrstu með því
að vinna með núverandi spálíkön fyrir mannauðsstjórnun
og síðar taka inn áætlunarlíkön um öryggi sjúklinga og
meta áhrif á mannaflaþörf. Í verkefninu er safnað gögnum
frá almennum bráðasjúkrahúsum en þau hafa yfir að ráða
flestum hjúkrunarfræðingum, þar verða flest mistök og atvik
og þangað fer stærstur hlutur útgjalda til heilbrigðismála.
Þátttakendur í verkefninu eru frá 11 löndum ESB auk
Kína, SuðurAfríku, Botswana og Bandaríkjanna. EFN er
þátttakandi í ráðgjafaráði verkefnisins.
Hreyfanleiki heilbrigðisstarfsfólks (Prof mobility)
Evrópusamtök um heilsu vernd (EHMA) hafa yfirumsjón með
þessu verkefni þar sem stefnt er að því að semja umsagnir til
ESB og aðildar landanna um þau áhrif sem stefna ESB, sem
ætlað er að auka hreyfanleika heilbrigðisstarfsfólks, hefur á
stjórnun heilbrigðisþjónustu. EFN tekur þátt í ráðgjafaráði
þessa verkefnis.
Hreyfanleiki heilbrigðisstarfsfólks (MoHProf)
Þetta er þriggja ára verkefni sem í taka þátt evrópskir
og alþjóðlegir rann sóknaraðilar auk fjölda alþjóðlegra
samtaka. Markmiðið með verkefninu er að rannsaka hvernig
heilbrigðisstarfsmenn, fyrst og fremst hjúkrunarfræðingar
og læknar, færa sig milli vinnustaða til, frá og innan
Evrópusambandsins. EFN er þátttakandi í ráðgjafaráði
verkefnisins og skipulagði umræðufund með stjórn
málamönnum og stefnumótendum ESB.
Tengslanet Evrópusambandsins um öryggi sjúklinga
(EUNetPaS).
Verk efnið, sem er kostað að hluta af framkvæmdastjórn
ESB, á að standa í tvö og hálft ár. Í því eru virkjuð 27
aðildarlönd ESB og allir meginhagsmunaaðilar innan ESB
og þar meðtalið EFN. Meginmarkmið verkefnisins er að
koma á fót samvinnu aðildarlandanna um sameiginlegan
stuðning, flutning þekkingar og bestu vinnubragða og
skipti á hugmyndum og efni sem getur hraðað framförum í
öryggismálum sjúklinga. Jafnframt er ætlunin að koma á fót
þverevrópsku tengslaneti um öryggi sjúklinga. EFN hefur
stöðu aukaaðila og er virkur þátttakandi í verkþáttunum
„Venjur í öryggismálum sjúklinga“, „Menntun og þjálfun“,
„Vettvangsprófanir og mistök í lyfjagjöfum“ og „Mat á
verkefninu“. Verkefninu var hleypt af stokkunum í Utrecht í
Hollandi í febrúar 2008 og áætlað er að því ljúki í september
2010.
Frekari upplýsingar um starfsemi EFN má finna á vefsíðu samtakanna,
www.efnweb.eu.
Fréttapunktur
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta