Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Page 14
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201110
„Það átti sér langan aðdraganda að ég
fór út í þetta rannsóknarverkefni núna.
Ég stundaði á sínum tíma meistara og
doktorsnám í Bandaríkjunum og kynntist
þar þjálfun fyrir hjúkrunarfræðinga
í verkjalyfjameðferð sem nefnist „Pain
Resource Nurse“ á ensku. Þetta er
markviss þjálfun fyrir hjúkrunarfræðinga í
verkjameðferð sjúklinga. Upphaflega var
þessi þjálfun skipulögð í Kaliforníu hjá
Betty Ferrell og hennar fólki. Síðan hefur
frekar ákveðna þætti í henni fyrir þessa
rannsókn. Einnig er nauðsynlegt að
skoða hvort þjálfun hjúkrunarfræðinga
skilar sér í betri verkjameðferð. Við vitum
að verkir eru gríðarlega mikið vandamál
og ein aðalástæðan fyrir því að fólk
leitar til heilbrigðisþjónustunnar. Verkir
eru þar fyrir utan vandmeðhöndlaðir.
Ég tel að markvissari verkjameðferð geti
skilað sjúklingum árangri,“ segir Sigríður
enn fremur.
meðferðin verið tekin upp á sjúkrahúsum
víða um Bandaríkin og gefið góða raun,“
segir Sigríður Gunnarsdóttir þegar hún er
spurð um aðdraganda þess að hún hóf
rannsóknina. Hún segir að aldrei áður hafi
verið gerð heildstæð rannsókn á þessu
verkefni þótt útttektir hafi farið fram.
„Ég hef fylgst með þessari þróun lengi
og finnst verðugt að prófa meðferðina
hér á landi en við höfum styrkt enn
Elín Albertsdóttir, elal@simnet.is
KRAFTAR SAMEINAÐIR
Í VIÐAMIKILLI RANNSÓKN
Sigríður Gunnarsdóttir, dósent og forstöðumaður fræðasviðs í krabbameins
hjúkrun, vinnur að rannsókn á markvissri verkjalyfjameðferð ásamt hópi
sérfræðinga. Verkefnið hlaut tæplega 20 milljóna króna styrk frá Rannís en
því á að ljúka að þremur árum liðnum.