Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Blaðsíða 56
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 201152
Tilgangur rannsóknar
Árið 2008 voru gefnar út klínískar leiðbeiningar um áhættumat
og varnir gegn myndun þrýstingssára á Landspítala. Mikilvægt
var talið að kanna hvernig málum var háttað með tilliti til
fjölda og alvarleika þrýstingssára og forvarna fyrir innleiðingu
leiðbeininganna. Tilgangur rannsóknarinnar var því að kanna:
a) algengi, alvarleika og staðsetningu þrýstingssára hjá
inniliggjandi sjúklingum á Landspítala ákveðinn dag, b) helstu
áhættuþætti sjúklinga að fá þrýstingssár, c) forvarnir.
AÐFERÐ
Rannsóknarsnið, þýði og úrtak
Rannsókn þessi var lýsandi þversniðsrannsókn. Þýði var
sjúklingar sem lágu á Landspítala á rannsóknardegi. Úrtakið
var takmarkað við sjúklinga sem voru 18 ára eða eldri, höfðu
legið á spítalanum í tvo sólarhringa fyrir rannsóknardag og
sjálfir eða ættingjar þeirra veitt skriflegt samþykki fyrir þátttöku.
Undanskildir voru sjúklingar á geð og sængurkvennadeildum.
Á rannsóknardegi lágu 328 sjúklingar á Landspítala sem
uppfylltu skilyrði rannsóknar. Sjúklingar, sem veittu ekki
samþykki fyrir þátttöku, voru 90. Sjúklingar, sem útskrifuðust
eða voru fjarverandi þegar gagnasöfnun fór fram, voru 13.
Ógild gögn voru 6. Endanlegt úrtak var því 219 sjúklingar,
110 karlar og 106 konur. Upplýsingar um kyn vantaði hjá 3
sjúklingum. Aldursdreifingu má sjá í töflu 2. Ekki var marktækur
munur á kyni þeirra sem tóku þátt og tóku ekki þátt í
rannsókninni, en munurinn á þátttöku var marktækur (p<0,05)
í öllum aldurshópum nema þeim elsta og yngsta.
Mælitæki
Bradenkvarðinn er mikilvægur hluti af mælitæki EPUAP.
Hann hefur verið notaður mjög víða, bæði vestan hafs og
austan. Bradenkvarðinn telst áreiðanlegasta matstækið
borið saman við önnur mælitæki, t.d. Nortonkvarðann
og Waterlookvarðann sem víða eru notaðir. Næmi
Bradenkvarðans telst frekar gott eða 57% og sértækni
67,5% (PancorboHidalgo o.fl., 2006).
Við rannsóknina var notað mælitæki EPUAP um þrýstingssár.
Það inniheldur 21 breytu, ýmist nafnbreytur (nominal variable)
eða raðbreytur (ordinal variable) og flokkast þannig:
A Bakgrunnsbreytur: Aldur sjúklings, skipt í sex flokka: 1839
ára, 4059, 6069, 7079, 8089 og yfir 89 ára, áætlaðir
legudagar sjúklings að mati hjúkrunarfólks og kyn sjúklings.
B Sex áhættuþættir Bradenkvarðans: virkni, hreyfigeta,
skyntilfinning, næring, raki, núningur og tog auk áhættu
vegna þvag og hægðaleka. Hverjum áhættuþætti eru gefin
14 stig nema í núningi og togi þar sem stigin eru 13.
Áhætta mælist frá 6 upp í 23 stig og eykst með fækkun
stiga. Meðaláhætta sjúklinga mælist 18,919,7 stig (Bours
o.fl., 2002; Lahmann o.fl., 2005). Sjúklingar, sem fá meira
en 18 stig, teljast ekki í hættu, í vissri hættu við 1518 stig,
í miðlungshættu við 1314 stig, í mikilli hættu við 1012 stig
og í mjög mikilli hættu við 69 stig (Braden og Bergstrom,
1988). Fækkun samanlagðra stiga Bradenkvarðans virðist
ráða mjög miklu hvað varðar hættu á myndun þrýstingssára
(WannHansson o.fl., 2008).
C Stigun og staðsetning alvarlegasta þrýstingssársins og
staðsetning annarra sjáanlegra þrýstingssára.
D Forvarnir: Undirlag sjúklinga (rúmdýnur og hjólastólasessur),
snúnings og hagræðingarskemu.
Þýðing mælitækisins úr ensku á íslensku var unnin af fyrsta
höfundi greinar og borin undir aðra höfunda til samþykktar.
Áreiðanleiki íslenskrar þýðingar mælitækis EPUAP var ekki
metinn.
Framkvæmd / gagnasöfnun
Sextán hjúkrunarfræðingar af ýmsum deildum spítalans önnuðust
gagnasöfnun. Þeir skoðuðu húð allra sjúklinga, sem veitt höfðu
leyfi til rannsóknarinnar, og nutu aðstoðar hjúkrunarfræðinga
eða sjúkraliða á deildum við að afklæða, klæða og hagræða
sjúklingum. Hjúkrunarfræðingarnir höfðu áður fengið tveggja
klukkustunda undirbúningsfræðslu þar sem farið var yfir
mælitækið og myndir skoðaðar af þrýstingssárum á vefsíðu
Tafla 2. Aldurshópar og kyn sjúklinga í úrtaki.
Sjúklingar sem tóku þátt (n=219) Sjúklingar sem tóku ekki þátt (n=90)
Aldur
í árum
Karlar
n (%)
Konur
n (%)
Kyn vantar
n (%)
Samtals
n (%)
Karlar
n (%)
Konur
n=%)
Samtals
n (%)
1839 4 (2) 1 (1) 0 (0) 5 (2) 2 (2) 4 (4) 6 (7)
4059 14 (6) 13 (6) 0 (0) 27 (12) 10 (11) 4 (4) 14 (16)*
6069 18 (8) 13 (6) 0 (0) 31 (14) 2 (2) 6 (7) 8 (9)**
7079 41 (19) 27 (12) 0 (0) 68 (31) 8 (9) 10 (11) 18 (20)**
8089 31 (14) 39 (18) 3 (1) 70 (32) 12 (13) 22 (25) 34 (38)**
> 89 2 (1) 13 (6) 0 (0) 15 (7) 2 (2) 8 (9) 10 (11)
Samtals 110 (50) 106 (49) 3 (1) 219 (100) 36 (40) 54 (60) 90 (100)
*p<0,05; **p<0,001